<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:57:11" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:58:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:57:11">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir ræðuna en
    árétta vegna þeirra spurninga og vangaveltna sem komu fram um varnartengd
    útgjöld að í aðdraganda Haag-fundarins fékk fjárlaganefnd minnisblað frá
    utanríkisráðuneytinu þar sem gerð var grein fyrir stóru línunum varðandi
    varnartengd útgjöld sem þá voru í vinnslu vegna Haag-fundarins. Það er
    dagsett 19. maí og liggur fyrir í gögnum nefndarinnar og á vef Alþingis.
    Jafnframt hefur komið fram að fjárlaganefnd stendur til boða að funda og
    fá frekari skýringar og gögn um þetta og það hefur verið rætt að þiggja
    það. Um þetta þarf því ekki að hafa stór orð eða lýsa mikilli furðu því að
    ég held að þetta sé í ágætisfarvegi þó að fundurinn hafi ekki verið
    tímasettur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>