<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:58:27" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:00:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:58:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Við höfum beðið um sundurgreiningu á þessum 43
    milljörðum og við höfum ekki fengið sundurgreiningu á þessum 43
    milljörðum. Þetta er ekkert flókið. Ef þetta er ekkert vandamál þá hljóta
    þessar sundurgreiningar að liggja fyrir og það er útilokað að það sé
    einhver leynd yfir þessari sundurgreiningu. Það er ekki þannig, og ég
    fullyrði það án þess að vita það, að menn hafi fundið 43 milljarða og sett
    þá í eitthvert leynimál í tengslum við varnarmál, það er ekki þannig. Ég
    hvet bara hv. þingmann, sem er varaformaður fjárlaganefndar, til að hjálpa
    okkur í minni hlutanum við að fá þessar sjálfsögðu upplýsingar. Það eru
    alveg sjálfsagðar upplýsingar að fá sundurgreiningu á þessu. Við vitum öll
    að það eru komnar — eða ég vona það, ég geri ráð fyrir því og við vissum
    það fyrir löngu að það væri að koma eitthvert upplegg frá
    Atlantshafsbandalaginu um hvað gæti talist til varnartengdra verkefna og
    hvað ekki. Þetta er ekki lítil upphæð, 43 milljarðar, og tengist ýmsu öðru
    og það væri algjörlega fráleitt ef við værum ekki að ræða þessi mál í
    tengslum við fjárlög og ríkisreikning. Ég hvet hv. þingmann til að beina
    því áfram og sjá til þess að þingnefndin öll fái þessa
    sundurgreiningu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>