<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T15:00:39" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:01:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:00:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir andsvarið og ítreka að það
    er í raun búið og gert að fylgja því eftir að við fáum þennan fund þó að
    hann hafi ekki verið tímasettur. Yfirlitið náði bæði til þess sem heyrir
    undir A-hluta ríkissjóðs en líka til opinberra fyrirtækja og
    sveitarfélaga, þó að það séu lægri tölur. Það er sjálfsagt að fara yfir
    það á fundi með utanríkisráðuneytinu og eftir atvikum fjármálaráðuneytinu
    líka.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>