<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T15:01:17" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:03:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:01:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Við vorum ekki að biðja um fund. Við vorum að
    biðja um sundurgreiningu. Við erum búin að heyra að þetta sé í A-hlutanum
    og að þetta sé einhvers staðar annars staðar. Flott, þá viljum við fá
    sundurgreininguna. Það var ekki verið að biðja um fund. Ef hv. þingmenn í
    fjárlaganefnd færu ekki fram á sundurgreiningu á 43 milljörðum til
    varnartengdra verkefna þá væru viðkomandi hv. þingmenn fullkomlega
    meðvitundarlausir. En það var ekki verið að biðja um fund. Það er verið að
    biðja um sundurgreiningu á þessum 43 milljörðum. Við báðum um það fyrst í
    október fyrir ári síðan. Ég skil ekki alveg hver tilgangurinn er hjá hv.
    þingmanni með þessu andsvari. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg
    hvað er í gangi. Hvert er vandamálið, virðulegi forseti? Hér koma menn upp
    og segja: Heyrðu, ekki hafa áhyggjur og það var sent bréf 19. maí og sagt
    að við mættum koma á fund.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Já, flott, bara gaman að því, bara ekkert mál
    að koma á fund en við báðum um þessa sundurgreiningu. Það hafa enn ekki
    komið nein rök fyrir því af hverju menn eru ekki tilbúnir að koma með
    þessa sundurgreiningu. Hæstv. fjármálaráðherra segir: Ég er alveg til í
    það en það er hæstv. utanríkisráðherra sem vill ekki að þið fáið þetta.
    Hæstv. utanríkisráðherra segir í þinginu: Heyrðu, það er ekki ég. Þetta
    mál er bara að verða verulega dularfullt. Ef einhvern tímann er þörf á
    Sherlock Holmes þá er það núna, virðulegi forseti, því það er ekki nokkur
    leið að finna út hvað er í gangi hérna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>