<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T15:03:43" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:13:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:03:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Veit forseti hvort fjármálaráðherra mun taka meiri
    þátt í þessari umræðu? Ég var nú að vonast til þess að við hefðum einhver
    skoðanaskipti um þetta efni og við höfum sjaldan tækifæri til að ræða
    ríkisfjármálin eins og við erum að gera í dag út frá staðfestingu á
    ríkisreikningi.</ns:mgr>

    <!--hlusta á 15:04:35 - tvínota???-->

    <!---->

    <ns:mgr>Við erum hér búin að velta fyrir okkur svolítið því sem snýr að
    fjárveitingum til varnar- og öryggismála, þessum svokölluðu 1,5% sem var
    ákveðið að fara í eftir fund varnarmálaráðherra á NATO-fundi í júní í
    fyrra, 2025, þar sem var ákveðið að fara í 1,5% og síðan aftur bein 3,5%
    til varnar- og öryggismála en 1,5% er svona meira sem snýr að innviðum
    viðkomandi landa og tvínota, og þar hefur umræðan snúist um það síðan í
    júní í fyrra, og inni í hv. fjárlaganefnd núna í að verða ár, að fá
    frekari greiningu á hvað sé innifalið í þessum 0,92% sem Ísland á að vera
    komið upp í. Nú á að vera búið að fylla í þessi 1,5% fyrir árið 2035. Við
    sáum það, herra forseti, í fjármálaáætluninni sem var samþykkt hérna í
    júní og umræðan var um í vor, að það er mjög lítil aukning inn í þessa
    prósentutölu í fjármálaáætlun sem við samþykktum í júní þannig að það er
    raunverulega búið að vísa þessu máli svolítið inn í framtíðina, inn á
    næsta kjörtímabil, þannig að næsta ríkisstjórn sem tekur þá við fær
    raunverulega miklu stærra verkefni í hendurnar en ef þetta hefði verið
    tekið jafnt og þétt yfir þetta árabil. Og satt að segja kemur töluvert á
    óvart af hverju þessi viðkvæmni er í gangi gagnvart þessum 0,92%, hvernig
    hún er fundin til. Þetta var sent inn til NATO og átti, held ég, að vera
    komið þangað fyrir 15. maí í vor, hvernig Íslendingar skilgreina þessi
    0,92. Þess vegna skiljum við ekki, herra forseti, hv. þingmenn sem sitja í
    fjárlaganefnd og aðrir hér í þinginu, hvað er vandamálið með að þetta sé
    betur skilgreint og gefnar upplýsingar um hvað málið snýst um þannig að
    við getum áttað okkur betur á því hvað verið er að fást við hjá
    framkvæmdarvaldinu, inni í utanríkisráðuneytinu um skilgreiningar og í
    fjármálaráðuneytinu um skilgreiningar á þessum 0,92%.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan er annað mál sem sá sem hér stendur hefur hugsað lengi um.
    Ég sat í fjárlaganefnd 2017 og 2018 þegar framkvæmdir við nýjan
    Landspítala eru að hefjast. Eins og ég man þetta var skóflustungan tekin
    að nýja Landspítalanum 2018 og spítalinn átti að vera tilbúinn 2024, fyrir
    tveimur árum. Síðan erum við búin að heyra að það sé verið að lengja í
    framkvæmdatímanum, 2026, 2027, 2028. Svo er farið að tala um 2029 og 2030.
    Svo sjáum við skyndilega bara í sjónvarpsfréttunum í vor hjá starfsmanni
    nýja Landspítalans að það sé líklegra að þetta sé 2031. Eftir það er farið
    að tala um 2032, að framkvæmdin fari átta ár fram yfir framkvæmdaáætlunina
    sem var samþykkt í byrjun um framkvæmdirnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. fjármálaráðherra kom inn á það í sinni ræðu áðan að það er
    svolítið sérstakt þetta með fjárheimildirnar, fjárfestingarheimildir í
    fjárlögum, og hvernig hefur verið lengi. Það er ekki verið að nýta þær.
    Þær eru færðar á milli ára. Þær eru teknar út eins og er gert núna í
    sambandi við aðhald í fjárlögunum. Mesta aðhaldið sem þessi ríkisstjórn er
    að fara í í sambandi við fjárlögin er að það er verið raunverulega að
    draga úr fjárheimildum vegna uppsafnaðra fjárheimilda til fjárfestinga.
    Það er kannski stærsti einstaki þátturinn í fjárlögunum sem við erum að
    vinna með núna og hafa verið lögð fram. Ég hef spurt raunverulega hvernig
    ríkisstjórnin eða þeir sem fara með framkvæmdarvaldið séu að fylgjast t.d.
    með framkvæmdum við nýjan Landspítala. Hver ber ábyrgð á að sýna aðhaldið
    þar? Vegna þess að við sjáum þennan óstöðugleika annars vegar í
    fjárheimildum og síðan aftur hversu mikið þær eru nýttar, þær safnast upp
    og svo er verið að færa fram og til baka á milli ára og gegnsæi
    fjárlaganna hefur verið svolítið til vansa tengt því á síðustu árum. Þess
    vegna hef ég óskað eftir því, herra forseti, að það væri kallað eftir því
    hvernig þessum málum hefur verið háttað síðasta áratuginn. Það væri
    kannski sniðugt að miða þetta við tíma þessa tímabils eftir að lög um
    opinber fjármál voru samþykkt hér, greidd um þau atkvæði á Alþingi í
    desember 2015, kannski að ná bara yfir þau fjárlög sem hafa komið eftir að
    lögin voru samþykkt, og svo væri reyndar fróðlegt að sjá hvernig það hefur
    verið fyrir þetta, hvernig var staðið að málum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En það er stórt vandamál hvernig þessum málum er sinnt. Það er
    ekki bara nýi Landspítalinn, hann er bara svo stór í sniðum að það er
    auðvelt kannski að benda á hann varðandi þessar fjárveitingar. En við erum
    að sjá þetta í mörgum málaflokkum hjá framkvæmdarvaldinu og þetta er
    raunverulega þetta svokallaða aðhald sem er borið á torg núna í tengslum
    við fjárlögin. Það er fyrst og fremst verið að fresta framkvæmdum eða færa
    fjárheimildir á milli ára. Það er nú allt og sumt. Það er mjög takmarkaður
    þáttur af þessum 44 milljörðum, mig minnir að það séu 15, sem er hinn
    eiginlegi rekstur ríkisins sem er þar undir. Þetta er klárlega eitthvað
    sem þarf að skoða miklu betur og eins og kom kannski fram í máli hér áðan
    hjá hæstv. ráðherra málaflokksins og hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni,
    hvort það sé einhvern veginn kominn tími á að endurskoða lögin um opinber
    fjármál nú þegar tíu ár eru liðin frá því að þau voru samþykkt, hvort við
    getum ekki bætt eitthvað varðandi þessa endurskoðun eða hvernig við eigum
    að taka næstu skref í að laga þessa hluti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er eins og í sambandi við þetta mál, ef við skoðum það sem
    gerist á árinu 2025, þetta endurmat á skuldbindingum LSR, þar sem
    raunverulega kemur mikil bjögun. Þetta eru raunverulega uppsafnaðir
    útreikningar yfir einhver ár, töluvert tímabil. Við þurfum einhvern veginn
    að fá þetta gegnsæi betur fram um raunverulega hvað hefði gerst ef fólk
    hefði bara haldið sig við raunverulega þau fjárlög sem voru samþykkt hér í
    nóvember 2024 og fjáraukarnir teknir út, þessar skuldbindingar gagnvart —
    útreikningarnir, tryggingastærðfræðilegu útreikningarnir gagnvart
    lífeyrissjóðunum og það hefði verið til að reyna að fá heildarmynd af
    þessu vegna þess að það er skoðun þess sem hér stendur, herra forseti, að
    fjárlög ársins 2025, eins og þau voru lögð fram í nóvember og samþykkt í
    þinginu í 3. umræðu í nóvember 2024, hefðu svo sannarlega getað orðið
    hallalaus eða allt að því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við þurfum líka að taka upp kannski markvissari vinnubrögð
    varðandi þingið og eftirlitshlutverk þingsins varðandi heimildir á
    uppgjörum hjá LSR, mig grunar að það eigi bæði við A-deildina og
    B-deildina, hvaða heimildir voru veittar í þinglegri meðferð sem snúa að
    því og hvort framkvæmdarvaldið hafi verið með allt sitt á hreinu gagnvart
    heimildunum í þinglegri meðferð, hvort það hafi yfirleitt farið fram. Sá
    sem hér stendur hyggst nú eitthvað reyna að grufla í því í vinnu
    fjárlaganefndar í vetur í störfum þingsins, reyna að átta sig á
    þessu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það hefði verið gagnlegt, herra forseti, að reyna að skapa umræðu
    um þessa þætti hér og hefði verið gott ef hæstv. ráðherra hefði setið
    aðeins lengur yfir þessu. Við fáum mjög sjaldan tækifæri til að ræða
    efnislega um lögin um opinber fjármál og staðfestingu á ríkisreikningi og
    hvernig þetta allt saman virkar. Það er mín trú að þessi vinna hafi nú
    skánað hjá okkur eftir að lögin voru samþykkt. Sá sem hér stendur þekkir
    reyndar það tímabil nánast allt ágætlega en reyndar ekki það sem var áður
    en lögin voru samþykkt. En agi og festa held ég að hafi klárlega aukist
    töluvert í allri þessari vinnu. En ég fer ekki lengra að sinni og læt hér
    kyrrt liggja.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>