<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-16T15:14:23" skst="HKF" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:19:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:14:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="76">
      <ns:málsheiti>búvörulög og búnaðarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 76 sem er mál nr. 76.
    Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993,
    og búnaðarlögum, nr. 70/1998, um framlengingu búvörusamninga. Núgildandi
    búvörusamningar renna út 31. desember næstkomandi. Um er að ræða fjóra
    samninga sem stjórnvöld gerðu við Bændasamtök Íslands á árinu 2016 en
    samningarnir fjalla um starfsskilyrði nautgriparæktar, sauðfjárræktar og
    framleiðenda garðyrkjuafurða, sem og um almenn starfsskilyrði
    landbúnaðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við síðustu endurskoðun samninganna, sem fór fram á árinu 2023,
    voru stjórnvöld og Bændasamtök Íslands sammála um að hefja strax samtal um
    starfsumhverfi landbúnaðar til framtíðar. Hefur það samtal átt sér stað
    síðan og á árinu 2023 voru samþykktar tvær þingsályktanir sem varða
    landbúnað, annars vegar matvælastefna til ársins 2040 og hins vegar
    landbúnaðarstefna til ársins 2040. Í matvælastefnunni er m.a. mælt fyrir
    um að skapaður verði skýr lagalegur rammi og starfsumhverfi sem styðji við
    verðmætasköpun á grunni sjálfbærrar nýtingar og í landbúnaðarstefnunni er
    kveðið á um að efla og styðja skuli íslenskan landbúnað og styrkja stoðir
    hans til framtíðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Stjórnvöld og Bændasamtök Íslands hafa á síðustu misserum átt í
    samtali um starfsumhverfi landbúnaðar og fyrir liggur að meiri tíma og
    svigrúm þarf til að ljúka því samtali. Er tilefni þessa frumvarps því að
    framlengja núverandi búvörusamninga til ársloka 2027 eða um eitt ár. Í því
    skyni undirritaði ég 3. júní síðastliðinn ásamt hæstv. fjármála- og
    efnahagsráðherra fyrir hönd stjórnvalda samkomulag við Bændasamtök Íslands
    um að framlengja núgildandi búvörusamninga til og með 31. desember 2027 á
    meðan samtalið um starfsumhverfi landbúnaðar færi fram. Í samkomulaginu er
    einnig kveðið á um að 1% af heildarframlagi samninganna verði á árinu 2027
    nýtt til að mæta fjárfestingarþörf í sauðfjárrækt og nautgriparækt og til
    að efla nýliðun í landbúnaði. Þannig er gert ráð fyrir að 30% af þeirri
    fjárhæð verði nýtt til að auka framlög til fjárfestinga í nautgriparækt,
    18% til fjárfestinga í sauðfjárrækt og 52% til nýliðunar samkvæmt
    rammasamningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins. Var samkomulagið
    undirritað með fyrirvara um nauðsynlegar breytingar á lögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með framlengingu gildandi búvörusamninga skapast aukið svigrúm til
    að ljúka þessu samtali milli stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands sem og
    við aðra hagaðila eftir því sem við á um starfsumhverfi landbúnaðar til
    framtíðar. Í ákvæðum búvörulaga og búnaðarlaga er kveðið á um gildistíma
    búvörusamninga og því eru í frumvarpi þessu lagðar til tæknilegar
    orðalagsbreytingar sem fela í sér að framlengja núgildandi samninga. Í
    búvörulögum er lagt til að breyta ártölum í 37., 38., 41., 51. og 58. gr.
    búvörulaga. Samhliða framlengingu búvörusamninga er einnig lagt til að
    niðurfellingu greiðslumarks sauðfjár verði frestað og það muni falla niður
    frá og með 1. janúar 2028 í stað 1. janúar 2027 eins og kveðið er á um í
    núgildandi búvörusamningum. Þá er lagt til að sett verði ákvæði til
    bráðabirgða í búnaðarlög. Þar verði kveðið á um að þrátt fyrir 1. mgr. 3.
    gr. laganna þess efnis að samningur skuli gerður til 10 ára þá skuli
    rammasamningur um almenn starfsskilyrði landbúnaðar við Bændasamtök
    Íslands gilda til og með 31. desember 2027.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Frumvarp þetta, verði það að lögum, hefur ekki
    fjárhagsáhrif fyrir ríkissjóð þar sem ekki eru lagðar til breytingar á
    heildarframlögum samkvæmt búvörusamningum en mælt er fyrir um það í
    fjármálaáætlun og fjárlögum. Þá mun frumvarpið ekki hafa slík áhrif á
    bændur þar sem ekki eru lagðar til neinar efnislegar breytingar frá
    núgildandi búvörusamningum nema hvað varðar tilfærslu í
    fjárfestingarstuðning og til nýliðunar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Áform um lagasetningu, ásamt mati á áhrifum frumvarpsins sem og
    samkomulag stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands, voru kynnt í samráðsgátt
    stjórnvalda frá 9. júlí til 10. ágúst sl. og barst ein umsögn um áformin.
    Drög frumvarpsins voru ekki sérstaklega kynnt í samráðsgátt þar sem um
    tæknilegar orðalagsbreytingar á ákvæðum búvörulaga og búnaðarlaga er að
    ræða og voru þær breytingar tilgreindar í áformum um
    lagasetninguna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vonast til þess að þetta frumvarp nái fram að ganga og það
    takist þannig að skapa aukið svigrúm til að ræða og útfæra starfsumhverfi
    landbúnaðar til framtíðar. Þá er rétt að nefna hér með tilliti til
    skýrleika að náist þetta frumvarp ekki fram nú á haustþingi mun það að
    óbreyttu leiða til þess að núgildandi búvörusamningar renni út 31.
    desember næstkomandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að öðru leyti vísa ég til greinargerðar þeirrar sem fylgir
    frumvarpinu og legg til að að lokinni þessari umræðu verði frumvarpinu
    vísað til 2. umræðu og hv. atvinnuveganefndar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>