<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T15:19:53" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:21:55 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:19:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="76">
      <ns:málsheiti>búvörulög og búnaðarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að fara yfir
    þetta mál og nýta tækifærið hér í dag fyrst og fremst til að hvetja hæstv.
    ráðherra til dáða í þessari vinnu og það fólk sem er að vinna með hæstv.
    ráðherra. Þetta er gríðarlega mikilvægur tímapunktur fyrir bændur. Við
    verðum að sjá alvöruaðgerðir þegar kemur að nýliðun, ekki einhvers konar
    brauðmola. Það duga engin vettlingatök. Við þurfum að sjá það að fólk sæki
    á ný inn í þessa grein. Við þurfum að passa upp á afkomu bænda. Við þurfum
    að passa upp á nýsköpun, orkuskipti og að bændur séu hluti af þeirri
    tæknibyltingu sem nú á sér stað. Þannig að ég vil nýta tækifærið til að
    hvetja hæstv. ráðherra til dáða og heiti góðri samvinnu um málið á
    vettvangi atvinnuveganefndar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum vil ég nýta tækifærið til að spyrja hæstv. ráðherra hvort
    hún sjái fyrir sér að ríkisstjórnin muni beita sér fyrir því að sú aukning
    til öryggis- og varnarmála, þá í samhengi við námsþol sem birtist í
    fjárlögum — hvort nýta eigi hluta af þeim fjármunum til að hækka styrki og
    möguleika bænda til að fá fjármagn til að uppfæra sína innviði. Ég er hér
    að tala um að margir af þeim innviðum, líkt og fjárhús, fjós og annað sem
    eru í sveitum landsins, þarfnast uppfærslu og við sjáum þessa aukningu í
    öryggis- og varnarmálum. Og í mínum huga eru bændur ekkert annað en hluti
    af fæðuöryggi landsins. Þess vegna vil ég að við séum að hugsa þetta í
    samhengi og mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé eitthvað
    sem hún sé að gera líka.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>