<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-16T15:22:00" skst="HKF" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:24:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:22:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="76">
      <ns:málsheiti>búvörulög og búnaðarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir
    andsvarið og góðar hugleiðingar. Það er auðvitað alveg rétt, stóra málið í
    íslenskum landbúnaði, líkt og landbúnaði alls staðar í kringum okkur, er
    að kljást við áskoranir sem eru nýliðun, kynslóðaskipti og nátengt því
    auðvitað tækni og nýsköpun, af því að fólk sem starfar í landbúnaði er
    ekkert undanskilið fólki í öllum öðrum atvinnugreinum, það bæði vill og
    þarf að tileinka sér þær nýjungar sem eru í boði til að þróa sína
    atvinnugrein. Það er ástæðan fyrir því að við erum einmitt í þessari
    framlengingu að leggja áherslu á þessa nýliðun, nýsköpunarþáttinn, og ég
    hef hug á því að í þessu samtali sem við eigum í núna og tölum um
    framtíðarskipulag, að það sé aðeins liðkað til í frekar niðurnjörvuðum
    sílóum, ef svo má segja, þar sem við erum að bjóða upp á meiri
    sveigjanleika og meira frelsi fyrir einstaka bændur til að haga málum,
    eins og þeir kannski sjá, af því að við vitum það líka að bændur eru bara
    eins og aðrir; þeir hafa mismunandi áhuga og að einhverju leyti þekkingu á
    að nýta sér hina mismunandi þætti landbúnaðarins. Þetta er klárlega hlutur
    sem við erum að vinna með og erum með augun á þessum bolta. Þetta er ekki
    einfalt mál og hv. þingmaður, sem ég veit að er nú komin yfir í
    atvinnuveganefnd og mun sennilega láta meira til sín taka í þessum málum
    en hingað til á vettvangi þingsins — ég fagna því að geta átt í samtali og
    samvinnu við hana eins og aðra hv. þingmenn í hv. atvinnuveganefnd um
    þetta mál.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi aukningu á framlögum hvað varðar öryggis- og varnarmál þá
    er þetta bara alveg gríðarlega áhugaverð hugmynd. Við erum akkúrat
    nákvæmlega í þessu sama samtali þegar kemur að uppbyggingu alls konar
    innviða og auðvitað er þetta, atvinnugreinin landbúnaður, ekki undanskilið
    þar nema síður sé af því að byggðir um allt land skipta auðvitað miklu
    máli þegar kemur að þessu. Þannig að við höfum hingað til fyrst og fremst
    verið að horfa á akkúrat þennan þátt þegar kemur að fæðuöryggi og
    matvælaframleiðslu. En þetta er bara mjög áhugaverð nálgun í þessu
    tilliti, bara svo það sé sagt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>