<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T15:24:25" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:26:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:24:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="76">
      <ns:málsheiti>búvörulög og búnaðarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góða yfirferð
    og ég hlakka til þessarar samvinnu. Ég veit að hæstv. ráðherra er með gott
    teymi í þessari vinnu sem ég hlakka til að vinna með sömuleiðis. Mig
    langar bara til að hnykkja á því í samhengi við nýliðunina sérstaklega,
    bara til að setja fram þær væntingar sem ég hef í þessum málum, að mér
    finnst mikilvægt þegar við erum að horfa á nýliðun, að við séum að horfa á
    erfðafjárskatt þegar einhver fellur frá og annar er að taka við. Mér
    finnst líka mikilvægt að við séum að hugsa um það að skattamál séu ekki að
    flækjast fyrir þegar það er verið að selja eignir á milli kynslóða, þegar
    nýir einstaklingar eru að taka við. Svo finnst mér líka að þeir hvatar sem
    þurfa að vera fyrir hendi, m.a. fyrir fólk sem vill koma inn í greinina,
    þurfi að vera skýrari og sterkari. Þannig að það er þessi heildarmynd sem
    þarf að vera þegar við erum að horfa á nýliðun: ef einhver fellur frá,
    kynslóðaskipti verða innan fjölskyldna, en líka að það séu möguleikar
    fyrir nýja aðila að koma inn í greinina. Kannski mætti hugsa sér, eins og
    Framsókn hefur sett fram, hugmyndir um að fólk geti tekið þátt í búskap á
    ríkisjörðum og svo sé einhvers konar fyrirkomulag um leigu eða kaup inn í
    framtíðina. Allt eru þetta hugmyndir sem væri áhugavert að vinna að og
    spegla þannig að, aftur, við séum að ná þessari viðspyrnu sem landbúnaður
    á Íslandi sannarlega þarf á að halda og á að fá, því að tækifærin eru alls
    staðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>