<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-16T15:26:22" skst="HKF" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:28:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:26:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="76">
      <ns:málsheiti>búvörulög og búnaðarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Aftur þakka ég fyrir andsvarið. Þetta er auðvitað
    risamál, jarðalögin. Það hefur komið skýrt fram í vinnu af hálfu
    ráðuneytisins og þeirra sérfræðinga sem við höfum leitað til og var
    einmitt kynnt á ráðstefnu sem við sátum báðar í vor, að Ísland sker sig
    t.d. úr að því leyti að hér verða sífellt fleiri bújarðir sem ekki eru í
    búrekstri. Ein af helstu ástæðunum fyrir því er að þær eru í eigu dánarbúa
    og það er, eins og staðan er í dag, ótímabundið, á meðan lönd í kringum
    okkur hafa brugðist við þessari þróun með því að setja einfaldlega á
    tímalengd, mig minnir að það séu 12 ár í Danmörku, svo dæmi sé tekið, og
    að þeim tíma liðnum þarf einfaldlega að gera búið upp til að koma því í
    sölu. Þetta er gríðarlega flókið mál og varðar náttúrlega fullt af hlutum
    sem okkur er annt um, eignarrétt og annað slíkt. En þetta er vinnan fram
    undan og tengist fyrirhuguðum endurbótum og endurskoðun á jarðalögum í
    sinni stóru mynd. Ég tek hjartanlega undir þau skilaboð sem hv. þingmaður
    er með, að það er eiginlega ekki hægt að skoða annan þáttinn, þ.e.
    landbúnað til framtíðar, án tillits til þess hvernig við þróum jarðalögin
    og svo öfugt. Þetta tengist, þannig að þetta skiptir miklu máli. Þetta er
    vinnan fram undan. Ég hef upplýst það hér í andsvörum, ég held akkúrat við
    hv. þingmann í 2. umræðu, að vegna þess hversu flókin og umfangsmikil
    vinnan við jarðalögin er þá hef ég einmitt frestað því til að geta kallað
    fleiri aðila að borðinu í vetur. Við verðum með málþing með haustinu þar
    sem við erum að reyna að laða alla að samtalinu og hafa sem víðast
    eignarhald á þeim breytingum sem við þurfum að fara út í, af því að þetta
    er lykilatriði. Það er til lítils að koma með einhverjar hugmyndir hér um
    hvernig ríkið ætlar með stuðningi að efla landbúnað ef jarðirnar eru smám
    saman að fara út og í einhverja aðra nýtingu eða enga nýtingu, eins og því
    miður virðist stundum vera raunin. Þetta er risaverkefni og ég hlakka til
    að eiga samstarf við hv. þingmann.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>