<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-16T15:29:05" skst="HKF" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:38:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:29:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="77">
      <ns:málsheiti>ársreikningar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á
    lögum um ársreikninga á þskj. 77, sem er 77. mál. Frumvarp þessa efnis var
    lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og
    frumvarpið sem ég mæli hér fyrir í dag er efnislega óbreytt frá fyrra
    frumvarpi. Með þessu frumvarpi er í grunninn lagt til að innleiddar verði
    í íslenskan rétt tvær Evróputilskipanir sem báðar varða breytingar á
    ársreikningatilskipun Evrópusambandsins frá árinu 2013 sem þegar hefur
    verið innleidd í íslenskan rétt í samræmi við skuldbindingar Íslands
    samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Hér er annars vegar um að
    ræða tilskipun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 2023, nr. 2775, að
    því er varðar breytingar á stærðarviðmiðunum fyrir örfyrirtæki, lítil,
    meðalstór og stór fyrirtæki. Hins vegar er um að ræða tilskipun
    Evrópuþingsins og ráðsins frá árinu 2021, nr. 2101, að því er varðar
    birtingu tekjuskattsupplýsinga af hálfu tiltekinna fyrirtækja.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið er jafnframt í samræmi við áherslur í stefnuyfirlýsingu
    ríkisstjórnarinnar um einföldun regluverks og skilvirkt rekstrarumhverfi
    fyrirtækja á Íslandi. Með þessu frumvarpi er reynt að tryggja að flokkun
    félaga samkvæmt ársreikningalögum endurspegli raunverulegt efnahagslegt
    umfang þeirra. Með frumvarpinu er þannig lögð til rýmkun á stærðarmörkum
    þeirra félaga sem geta nýtt sér einföld rafræn skil ársreikninga með því
    að vera skilgreind sem örfélög. Stór hluti íslenskra fyrirtækja fellur þar
    undir og verði frumvarpið að lögum munu fleiri minni rekstraraðilar hér á
    landi því falla undir skilgreiningu laganna um örfélög og njóta þeirrar
    stöðu sem því fylgir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með frumvarpinu er almennt verið að koma til móts við ábendingar
    sem borist hafa frá atvinnulífinu um að dreifa álagi vegna skila
    ársreikninga félaga yfir lengri tíma, létta álögur á minnstu félögin en fá
    upplýsingar fyrr fyrir stærri félög, sem er liður í aukinni skilvirkni og
    gegnsæi fyrir markaðinn. Nánar tiltekið eru þær breytingar sem lagðar eru
    til með frumvarpinu fjórþættar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fyrsta lagi felur frumvarpið í sér innleiðingu á tilskipun
    framkvæmdastjórnarinnar frá 2023 um hækkun stærðarmarka félaga. Tilefni
    tilskipunarinnar er veruleg verðbólga sem varð innan Evrópska
    efnahagssvæðisins, einkum á árunum 2021 og 2022. Markmiðið var þannig að
    koma í veg fyrir að félög færðust upp í hærri stærðarflokka eingöngu vegna
    verðlagsbreytinga án þess að raunverulegt umfang starfseminnar hefði
    aukist. Samkvæmt ársreikningatilskipun Evrópusambandsins og lögum um
    ársreikninga skiptast félög í örfélög, lítil félög, meðalstór félög og
    stór félög. Flokkunin byggir á þremur viðmiðunum, heildareignum, hreinni
    veltu og meðalfjölda ársverka og það eru tvö af þessum þremur viðmiðum sem
    ráða því síðan í hvaða stærðarflokk viðkomandi félag fellur. Með
    tilskipuninni eru fjárhæðarmörk vegna heildareigna og hreinnar veltu
    hækkuð um 25% en viðmið um meðalfjölda ársverka helst hins vegar óbreytt.
    Með frumvarpinu eru síðan stærðarmörk lítilla, meðalstórra og stórra
    félaga hækkuð til samræmis við þessar breytingar. Örfélagamörkin, þ.e.
    fjórði stærðarflokkur fyrirtækja, eru einnig hækkuð verulega en þó með
    öðrum hætti. Það er lagt til að mörk heildareigna hækki úr 20 millj. kr. í
    50 millj. kr. og mörk hreinnar veltu úr 40 millj. kr. í 100 millj. kr.
    Hækkunin er því hlutfallslega meiri en sú 25% hækkun sem tilskipunin
    kveður almennt á um. Mörkin eru þó áfram lægri en hæstu mörk sem
    ársreikningatilskipunin heimilar. Ástæðan fyrir því er sú sérstaka
    einföldun sem örfélögum stendur til boða hér á landi og hefur verið kölluð
    „hnappurinn“ en með henni geta örfélög óskað eftir því að ríkisskattstjóri
    útbúi rekstrar- og efnahagsyfirlit á grundvelli upplýsinga úr
    skattframtali félagsins. Yfirlitinu er síðan skilað til ársreikningaskrár
    til opinberrar birtingar í stað hefðbundins ársreiknings með því að haka í
    eða virkja hnappinn. Um er að ræða einfalda upplýsingagjöf sem er
    undanþegin yfirferð skoðunarmanns. Reynslan af þessu fyrirkomulagi hefur
    almennt verið góð og um þrjú af hverjum fimm örfélögum nýta sér
    heimildina. Úrræðið var hins vegar upphaflega og er fyrst og fremst hugsað
    fyrir félög með einfaldan og takmarkaðan rekstur. Ef örfélagamörkin yrðu
    hækkuð að fullu upp í hámark tilskipunarinnar sem við ræðum hér, m.a.
    þannig að félög með allt að tíu ársverk gætu fallið undir þau, þyrfti
    jafnframt að endurskoða hversu langt þessi einfalda upplýsingagjöf ætti að
    ná. Ef hins vegar vilji er til þess að skoða þetta í þinglegri meðferð er
    þetta auðvitað bara mjög áhugavert viðfangsefni en það þarfnast þinglegrar
    meðferðar af því að þetta liggur til grundvallar því að örfélögin eru
    tekin út undir í þessu máli. Með þessari leið sem lögð er til í
    frumvarpinu er leitast við að ná jafnvægi. Fleiri minni félög munu geta
    nýtt sér einföldunina en jafnframt verður áfram tryggt að félög með
    umfangsmeiri rekstur birti þær fjárhagsupplýsingar sem nauðsynlegar eru
    til að tryggja gagnsæi og traust á markaði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í öðru lagi er síðan í þessu frumvarpi lögð til hækkun um 25% á
    endurskoðunarmörkum í lögunum, þ.e. fjárhæðarmörkum sem ákvarða hvort
    ásetningur þurfi að vera endurskoðaður af endurskoðanda. Talið er rétt að
    hækka endurskoðunarmörkin í samræmi við hækkun á stærðarmörkum félaga
    samkvæmt frumvarpinu. Með þessari breytingu er m.a. verið að bregðast við
    óskum markaðarins um að endurskoðunarmörkin séu hækkuð í samræmi við stærð
    félaga og umsvif.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þriðja lagi er um að ræða hina innleiðinguna sem ég nefndi hér í
    upphafi máls míns. Það er innleiðing á tilskipun Evrópusambandsins frá
    árinu 2021 er varðar skyldu fyrir stór fjölþjóðleg félög til að útbúa og
    birta skýrslu með upplýsingum um greiðslu tekjuskatts. Markmið
    tilskipunarinnar er að auka gegnsæi þegar kemur að greiðslu tekjuskatts
    hjá stórum fjölþjóðlegum félögum, m.a. til að meta áhrif þeirra á
    raunhagkerfið. Á síðustu árum hafa alþjóðlegar reglur um skýrslugjöf
    fjölþjóðlegra félaga tekið talsverðum breytingum með það að markmiði að
    auka gegnsæi í skattamálum og styrkja getu skattyfirvalda til að bregðast
    við skattasniðgöngu og tilfærslu skattstofna. Umrædd tilskipun tekur
    eingöngu til stórra fjölþjóðlegra félaga hvað þetta varðar og með
    frumvarpinu er lagt til að ráðherra verði falið að kveða nánar á um
    framkvæmd þessa þáttar í reglugerð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fjórða lagi er um að ræða breytingar sem lúta að skilum
    ársreikninga til opinberrar birtingar hjá ársreikningaskrá. Lagt er til að
    stærri og kerfislæga mikilvæg félög skili ársreikningi fyrr á árinu en
    minni félög fái rýmri tímamörk til skila. Tímanleg birting ársreikninga
    stærri félaga styður við gegnsæi og eðlilegt aðhald, enda eru
    fjárhagsupplýsingar mikilvægar fyrir traust og skilvirkni viðskipta og
    ákvarðanatöku sem byggir á þeim. Á móti kemur rýmkun á skilafresti fyrir
    örfélög. Hér er litið til meðalhófs en örfélög eru minnstu félögin og
    rekstur þeirra almennt einfaldari en annarra félaga. Því er ekki eins
    brýnt fyrir fjármálamarkaði að fjárhagsupplýsingar þessara félaga berist
    jafn snemma og hjá stærstu félögunum. Hér ber að hafa í huga að meiri
    hluti íslenskra félaga eru örfélög og hér er því um að ræða talsverða
    einföldun fyrir meiri hluta íslenskra félaga og er með tillögunni komið
    til móts við ábendingar frá atvinnulífinu um að létta álögur á minnstu
    félögin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Líkt og nefnt var áðan var frumvarp sama efnis lagt fram á síðasta
    löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið gekk til efnahags-
    og viðskiptanefndar og bárust þangað alls tíu umsagnir varðandi
    frumvarpið. Ráðuneytið tók þær umsagnir allar til skoðunar en ekki var
    talið tilefni til að gera efnislegar breytingar á frumvarpinu við
    framlagningu þess nú.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Verði frumvarpið að lögum er ekki gert ráð fyrir auknum kostnaði
    fyrir ríkissjóð vegna þeirra breytinga sem frumvarpið kveður á um. Um
    áhrif samsetningar félaga á Íslandi út frá stærðarmörkum vísast nánar til
    umfjöllunar í 6. kafla greinargerðar með frumvarpinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Herra forseti. Ég tel að þetta frumvarp feli í sér jákvæðar
    lagabreytingar fyrir íslenskt atvinnulíf. Efnisatriði frumvarpsins eru
    almennt í samræmi við ábendingar sem hafa borist frá atvinnulífinu um
    leiðir til einföldunar og aukinnar skilvirkni þegar kemur að skilgreiningu
    félaga á Íslandi út frá stærðarmörkum og raunverulegu efnahagslegu
    umfangi. Á sama tíma er með frumvarpinu verið að uppfæra löggjöf okkar til
    samræmis við nýjustu breytingar á viðkomandi EES-löggjöf hvað efnisatriði
    frumvarpsins varðar. Með frumvarpinu er opnað fyrir að stór hluti
    íslenskra félaga geti nýtt sér einfaldari rafræn skil ársreikninga, auk
    annarra þátta í átt að aukinni skilvirkni og einföldun. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað
    til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>