<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T15:39:00" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:40:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:39:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="77">
      <ns:málsheiti>ársreikningar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra
    fyrir framsöguna og fína ræðu. Þetta mál var mjög langt komið í hv.
    efnahags- og viðskiptanefnd nú í vor en ekki náðist að klára það. Þetta er
    auðvitað í grunninn bara mjög gott mál og einfaldar mjög mikið regluverkið
    í fyrirtækjum og það var mikil jákvæðni í garð frumvarpsins í nefndinni.
    Það kom mér sem formanni nefndarinnar kannski líka á óvart, við vorum
    auðvitað búin að klára gestakomur og allt slíkt og vorum búin að vinna
    mjög mikið í málinu, hvað endurskoðendur hafa rosalega mikið að gera
    þannig að það er þarfaþing að létta aðeins á þeim. Það er bara mjög mikið
    að gera hjá endurskoðendum í þessu landi. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo var annað sem ég myndi kannski vilja varpa til hæstv.
    ráðherra: Við fundum þarna ýmsar leiðir til þess að létta enn frekar á
    frumvarpinu, þannig að gengið yrði aðeins lengra en ráðuneytið er að
    leggja til, og ég velti því upp til hæstv. ráðherra hvort því yrði ekki
    vel tekið ef við fyndum leiðir til þess að létta enn frekar á. Þetta er í
    grunninn mjög gott frumvarp fyrir atvinnulífið og við erum bara að létta á
    regluverki þannig að hlutirnir gangi kannski aðeins hraðar. Þetta er bara
    hið besta mál.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>