<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-16T15:40:30" skst="HKF" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:41:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:40:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="77">
      <ns:málsheiti>ársreikningar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir andsvarið. Ég
    er sammála því að þetta er mjög gott mál. Eins og ég kom inn á í ræðu
    minni felur þetta fjögur atriði í sér. Þar af eru tvö innleiðingarmál og
    hitt er það sem bætt var við til einföldunar þar sem tekið er mið af
    sérstöðu okkar sem lýtur að þessum smærri fyrirtækjum. Við erum svo sem
    með fleiri hugmyndir til einföldunar en í ljósi þess að málið dagaði uppi
    síðastliðið vor — það skiptir fjölmörg fyrirtæki miklu máli að ná þessu í
    gegn og ég veit að það er brjálað að gera hjá endurskoðendum, og það eru
    fleiri sem þetta mál varðar — ákváðum við að fara ekki í frekari
    efnisbreytingar á málinu. En við tökum því fagnandi og lýsum okkur
    reiðubúin ef óskað er eftir aðstoð okkar við einhvers konar vinnu við að
    stækka regnhlífina yfir þessi einföldunarmál, svo sannarlega.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>