<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T15:41:57" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:43:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:41:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="77">
      <ns:málsheiti>ársreikningar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina og
    fyrir að koma aftur fram með þetta mál sem ég tel vera mjög brýnt. Ég hef
    enda lagt fram sambærilegt mál að hluta til í nokkur skipti hér á Alþingi.
    Mig langaði til að hrósa hæstv. ráðherra fyrir margt sem er þarna að
    finna, m.a. varðandi hækkun viðmiðunarfjárhæða og breytingu á flokkun. En
    mig langar að spyrja út í — í greinargerð með frumvarpi hæstv. ráðherra er
    vísað í ársreikningatilskipun ESB og tvær til viðbótar —
    endurskoðunarskylduna, í 98. gr. núgildandi ársreikningalaga. Hér leggið
    þið til að hækka viðmiðunarmörkin út af verðþróun, eins og ESB hefur þegar
    gert og farið er yfir í greinargerðinni, en af hverju er hreinlega ekki
    miðað við almenna stærðarflokkun ársreikningalaga og lítil félög eða
    örfélög þar með undanskilin? Það er í samræmi við lágmarkskröfur
    ársreikningatilskipunar ESB. Af hverju göngum við lengra?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>