<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-16T15:43:24" skst="HKF" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:45:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:43:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="77">
      <ns:málsheiti>ársreikningar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er
    eins og mig minni að við höfum átt þetta samtal hér fyrir hálfu ári þegar
    málið var síðast á dagskrá. Ástæðan er fyrst og fremst þessi séríslenska
    lausn sem íslensk örfélög hafa með hnappinum svokallaða, þar sem þau fá
    svigrúm til þess að skila ársreikningi inn með því að nota skattinn, eins
    og ég fór yfir í ræðu minni áðan. Ef við hefðum hækkað mörkin þannig að
    það fjölgaði þessum fyrirtækjum innan örfélagarammans væri ástæða til eða
    þörf á því að endurskoða þau fyrirtæki sem fá að nýta sér þennan hnapp því
    hann var upphaflega hugsaður fyrir fyrirtæki með mjög einfaldan rekstur.
    Það var meira horft á einfaldleika rekstrarins eða eðli rekstrarins í þeim
    skilningi frekar en akkúrat krónutölur og annað slíkt. Það er alls ekkert
    útilokað að gera það. Það er hins vegar bara aukaskref sem þyrfti þá að
    taka samhliða. Mat mitt er það að hnappurinn og notkun á honum skipti
    örfyrirtæki það miklu máli að það sé eðlilegra að halda honum inni, bjóða
    upp á þá séríslensku lausn ef svo má segja, frekar en að fara alla leið
    upp með mörkin. Það er auðvitað meira en eðlilegt og sennilega nauðsynlegt
    að þessu sé varpað upp í vinnu nefndarinnar en fari það upp þá þarf að
    endurskoða aðeins mörkin sem hnappurinn nær til.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>