<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T15:45:16" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:47:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:45:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="77">
      <ns:málsheiti>ársreikningar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Af því
    að ég er hér að enduróma umkvartanir og athugasemdir frá atvinnulífinu, og
    ég heyrði að hæstv. ráðherra vísaði til þess að við ættum auðvitað eftir
    að fara í gegnum þinglega meðferð og svo kom hingað upp formaður hv.
    nefndar og tók vel í það, þá finnst mér mikilvægt — af greinargerð þessa
    máls má lesa að hér sé um innleiðingarmál að ræða og það er vísað þar í
    þrjár tilskipanir: ársreikningatilskipunina og síðan tvær tengdar
    tilskipanir. Við höfum sett okkur hér reglur um þinglega meðferð EES-mála
    og það er gríðarlega mikilvægt þegar verið er að bregða svona út af, og
    hæstv. ráðherra vísar til séríslenskra aðstæðna eða reglna eða
    framkvæmdar, að við gerum skýran greinarmun á því og mér finnst ekki nógu
    vel að gert þó að ég hafi skilið málflutning hæstv. ráðherra hér og síðan
    orðaskipti sem fara fram í kjölfarið. Það verður þá að tiltaka af hverju
    við erum að ganga lengra, velta upp þessum möguleikum, að mínu mati, ef
    við ætlum ekki að fara í bága við þessar reglur um meðferð EES-mála hér í
    þinginu. Þá er hreinlega hægt að taka efnislega afstöðu til þess hvort
    verður ofan á, ef það er verið að bera saman tvo kosti, a.m.k. að þeim sem
    fara í gegnum málið sé ljóst að hér er ekki beinlínis um skyldu að ræða
    samkvæmt þeim ESB-tilskipunum sem vísað er í. Mig langar því til að hvetja
    hæstv. ráðherra til dáða í þeim efnum og sömuleiðis, af því að ég heyrði
    að hún var jákvæð í garð þinglegrar meðferðar nefndarinnar eins og á að
    vera, til að taka vel í umleitanir og beiðni nefndarinnar um aðstoð ef það
    stendur til að létta málið enn frekar, sem ég tel að það sé full þörf á og
    mun fara yfir í stuttri ræðu á eftir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>