<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-16T15:47:25" skst="HKF" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:48:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:47:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="77">
      <ns:málsheiti>ársreikningar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er auðvitað
    ljóst að það þarf að gera frumvörp þannig úr garði að það sé ljóst hvað er
    hvað. Það er á sama tíma hægt að gera þá kröfu til þingmanna sem fjalla um
    málið að þau geri greinarmun á því hvenær verið er að fara út fyrir eðli
    tilskipana eða nýta sér þau mörk eða ramma sem alla jafna eru innan
    tilskipana. Hér er ekki verið að fara út fyrir þau mörk. Það er gefinn
    ákveðinn rammi, það er tekin ákveðin afstaða þar og færð rök fyrir því af
    hverju hún er tekin. Það er innan eðlis tilskipana. En það er alveg
    sjálfsagt og eðlilegt að vera skýrari með það ef þörf krefur. Ég taldi
    þessa greinargerð fara mjög vel yfir það hvernig stæði á því. En ég bara
    heyri hvað hv. þingmaður segir. Við gætum þess að vera skýrari með það. En
    eins og ég segi, það þarf auðvitað að gæta þess líka og stafa það ofan í
    fólk að þegar um það er að ræða að Evróputilskipanir gefa ákveðinn ramma,
    þannig að aðildarríki geti valið hvar innan þess ramma þau staðsetja sig,
    þá er það ekki gullhúðun.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>