<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T15:48:50" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 15:52:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:48:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="77">
      <ns:málsheiti>ársreikningar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það hefur nú mestallt komið fram hér þegar við
    þessa snörpu umræðu, enda er hún endurtekin. En aðeins til að fara betur
    ofan í það sem við hæstv. ráðherra ræddum nú rétt í þessu þá er einmitt
    kveðið á um það í reglum um þinglega meðferð EES-mála að við stöfum þetta
    ofan í fólk, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Að hvaða marki frumvarpið hafi að geyma frávik frá upphaflegu
    ESB-gerðinni. Sérstaklega skal tilgreint ef gengið er lengra en
    lágmarksákvæði viðkomandi gerðar kveður á um og skal rökstuðningur fylgja
    slíkri ákvörðun. Tilgreina ber sérstaklega ef svigrúm er til staðar við
    innleiðingu.“</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/um-althingi/upplysingar-um-althingi/reglur-settar-af-forsaetisnefnd-/thingleg-medferd-mala/medferd-ees-mala/-->

    <ns:mgr>Þetta hefur því miður, virðulegi forseti, misfarist allt of oft.
    Ég er alveg sammála hæstv. ráðherra um að við eigum auðvitað að gera
    skýran greinarmun á þessu — þegar er verið að gera reglur þannig úr garði
    að þær séu innan einhvers ákveðins ramma en eigum samt að láta vita af því
    þegar við erum að ganga lengra en lágmarksákvæði kveða á um. En hæstv.
    ráðherra fór ágætlega yfir þetta í ræðu sinni hér áðan.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En það er ánægjulegt að halda þessa ræðu og að við séum að fjalla
    um þetta mál í dag og ég hrósa hæstv. ráðherra aftur af því að ég þekki
    þetta mál ágætlega, eins og ég fór yfir hér áðan. Mig langar að nefna það
    aftur að á síðasta kjörtímabili skilaði þáverandi umhverfisráðherra,
    Guðlaugur Þór Þórðarson, skýrslu um gullhúðun til Alþingis sem sýndi okkur
    að í yfir 40% tilvika á tíu ára tímabili á hans málefnasviði var um
    gullhúðun að ræða. Við höfum auðvitað, sum hér á Alþingi, reynt að spyrna
    fótum við þessari reglusetningargleði sem á sér ýmsar orsakir, m.a. gert
    ítrekaðar tilraunir til að koma skikki á framkvæmd innleiðingar
    EES-reglna. Ég hef sjálf reynt að leggja mitt af mörkum, m.a. með svona
    afhúðunarfrumvörpum eins og hæstv. ráðherra kemur fram með í þinginu en
    líka með því að senda bréf til ráðherra og brýna þá og bréf til
    forsætisnefndar og ég er hér með mál inni í þinginu og við Sjálfstæðismenn
    um betri meðferð EES-mála í þinginu. Það var hafin heildarvinna við
    afhúðun í stjórnkerfinu og eftir því sem ég best veit hafa a.m.k.
    núverandi stjórnarliðar lýst yfir miklum áhuga á því að halda þeirri vinnu
    áfram og við sjáum það á þessu máli eða a.m.k. er einhver vinna í gangi
    við það. Ég fagna því og hvet hæstv. ráðherra til að láta til sín taka,
    sérstaklega líka til að skoða það hvernig þessi vinna fór fram í
    umhverfisráðuneytinu. Ég held að það sé þörf á því að gera svona úttektir
    í hverju einasta ráðuneyti. </ns:mgr>

    <ns:mgr>En aftur að þessu máli. Hæstv. ráðherra hefur farið ágætlega yfir
    að hennar tillaga gengur út á það, a.m.k. að hluta, að vinda ofan af
    gullhúðun, samræma íslenskt regluverk regluverki annarra landa að innri
    markaði Evrópusambandsins. Það er auðvitað óásættanlegt að þegar
    ársreikningatilskipunin var innleidd á sínum tíma hafi verið ákveðið að
    hér skyldi vera gengið lengra en var skylt. Þetta er íslenskur ósiður, við
    gerum þetta mjög gjarnan. Við göngum lengra en við þurfum og látum ekkert
    sérstaklega vita af því. Það er auðvitað óboðlegt að með þessu sé verið að
    draga úr samkeppnisstöðu íslenskra félaga. Þannig að ég vonast til þess að
    við klárum þetta mál hér á þingi og hæstv. ráðherra leggi þá sitt af
    mörkum við að afhuga a.m.k. þennan þátt laganna. Hæstv. ráðherra nefndi
    hér sérstaklega ársverkin og að það yrði sérstaklega skoðað hvort þau ættu
    að vera eins og í hennar tillögu er lagt til, þrjú, eða eins og heimilt er
    innan ramma ESB-tilskipana, að það séu tíu ársverk. Ég tek undir með
    hæstv. ráðherra að það sé full ástæða til þess að þetta sé skoðað í
    þinglegri meðferð og ég mun fylgja því eftir í þinginu. Ég þakka hæstv.
    ráðherra aftur fyrir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>