<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-16T15:53:23" skst="HKF" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:00:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T15:53:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="79">
      <ns:málsheiti>hlutafélög og einkahlutafélög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum
    um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög. Þetta er EES-innleiðing á þskj.
    79, 79. mál. Frumvarp þessa efnis var lagt fram á 157. löggjafarþingi sem
    604. mál á þskj. 1038 en náði ekki fram að ganga og er nú lagt fram hér að
    nýju efnislega óbreytt. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Með þessu frumvarpi eru innleidd ákvæði svonefndrar SRD
    II-tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins frá árinu 2017 um breytingu á
    tilskipun 2007/36/EB sem miðar að því að hvetja hluthafa til
    langtímaþátttöku og auka gegnsæi í samskiptum félaga og fjárfesta.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Efni frumvarpsins skiptist í fjóra meginþætti. Í fyrsta lagi er
    lagt til að nýr kafli bætist við lög um hlutafélög um milliliði,
    auðkenningu hluthafa og miðlun upplýsinga. Með ákvæðunum er hlutafélögum,
    sem hafa hlutabréf sín tekin til viðskipta á skipulegum markaði, tryggður
    réttur til að fá upplýsingar frá milliliðum til að bera kennsl á hluthafa
    sína. Lagt er til að milliliðir í skilningi kaflans verði skilgreindir og
    er þar um að ræða verðbréfafyrirtæki, lánastofnanir og
    verðbréfamiðstöðvar. Lagðar eru ríkar skyldur á milliliði um að miðla
    upplýsingum milli félags og hluthafa þess án tafar og auðvelda hluthöfum
    að nýta réttindi sín, m.a. réttinn til að taka þátt í og greiða atkvæði á
    hluthafafundum. Þær upplýsingar sem félög geta farið fram á til að bera
    kennsl á hluthafa sína eru m.a. fullt nafn, fjöldi hluta í eigu
    hluthafans, flokkur hlutabréfa er við á og hvenær hlutabréfin komust í
    eigu hluthafans.</ns:mgr>

    <ns:mgr> Í öðru lagi eru í frumvarpi þessu lagðar til breytingar á reglum
    um starfskjör stjórnenda. Gildandi ákvæði eru endurskoðuð og gerð
    ítarlegri. Jafnframt er stjórnsýslubyrðum létt af þó nokkrum fjölda félaga
    hér á landi. Í stað þess að reglurnar gildi um endurskoðunarskyld félög
    munu þær gilda um félög með hlutabréf sem tekin hafa verið til viðskipta á
    skipulögðum markaði. Þetta fækkar þeim félögum sem reglurnar ná til úr
    1.700 í 23. Hér er því um að ræða verulega einföldun og afhúðun á
    reglubyrði. Fyrir þessi skráðu félög verður bindandi atkvæðagreiðsla um
    starfskjarastefnu á fjögurra ára fresti sem félagsstjórn skal fara eftir
    þegar samið er um laun og aðrar greiðslur til æðstu stjórnenda. Stefnan
    verður að útskýra hvernig kjörin stuðla að framgangi viðskiptaáætlunar,
    langtímahagsmunum og sjálfbærni félags. Kröfur eru gerðar um að viðmið
    fyrir breytileg laun skuli byggð á skýrum og mælanlegum árangursviðmiðum,
    bæði fjárhagslegum og ófjárhagslegum, þar með talið tengdum samfélagslegri
    ábyrgð, og að tilgreina þurfi ávinnslutímabil og geymslutímabil hlutabréfa
    til að tryggja að hvatarnir samræmist langtímahagsmunum. Heimilt verður þó
    að víkja frá starfskjarastefnunni ef það er nauðsynlegt til að þjóna
    langtímahagsmunum og sjálfbærni félags í heild eða tryggja rekstrarhæfi
    þess. Þá er lagt til að fellt verði á brott bann við því að stjórnarmenn
    njóti greiðslna sem tengdar eru hlutabréfum í félagi og þess í stað gerð
    krafa um að öll starfskjör styðji við langtímahagsmuni og sjálfbærni
    félags. Auk þess skulu félög birta árlega sérstaka starfskjaraskýrslu með
    yfirliti yfir öll laun og hlunnindi stjórnenda ásamt samanburði við afkomu
    félagsins og launaþróun annarra starfsmanna. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þriðja lagi er lagt til að nýr kafli bætist við lög um
    hlutafélög sem fjallar um gagnsæi og samþykki fyrir viðskiptum félags með
    hlutabréf, sem hafa verið tekin til viðskipta á skipulögðum markaði, við
    tengda aðila. Ákvæðunum er ætlað að vernda hagsmuni félagsins og hluthafa
    sem eru ekki tengdir aðilar, þar með talið minnihlutahluthafa. Samkvæmt
    ákvæðunum munu viðskipti teljast mikilvæg ef þau nema 5% eða meira af
    heildareignum félagsins. SRD II-tilskipunin tilgreinir ekki hvað teljist
    mikilvæg viðskipti tengdra aðila og setur engin töluleg viðmið.
    Aðildarríkjum er falið að útfæra þetta sjálf með hliðsjón af aðstæðum á
    hverjum markaði. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Við undirbúning frumvarpsins var litið til framkvæmdar í öðrum
    ríkjum innan EES-svæðisins. Samanburður sýnir að hjá þeim ríkjum sem miða
    við heildareignir eru viðmið á bilinu 1–10% af heildareignum þar sem 10%
    viðmiðið var algengast en nokkur ríki hafa valið lægri þröskuld. Viðmiðið
    5% sem hér er valið er því í miðjum hópi evrópskra útfærslna og við val á
    því viðmiði var litið sérstaklega til aðstæðna á íslenskum markaði. Skráð
    félög eru fá og eignatengsl oft þéttari en á stærri mörkuðum. Lægra viðmið
    tryggir virkara aðhald og verndar hagsmuni minnihlutahluthafa við slíkar
    aðstæður. Jafnframt er rétt að hafa í huga að frumvarpið gengur skemur en
    tilskipunin heimilar hvað varðar málsmeðferð. Tilskipunin heimilar
    aðildarríkjum að krefjast samþykkis hluthafafundar fyrir mikilvægum
    viðskiptum en í frumvarpinu er einungis gert ráð fyrir samþykki stjórnar.
    Viðmiðið 5% telst í því samhengi hóflegt og í samræmi við markmið
    tilskipunarinnar um aukið gegnsæi og vernd hluthafa. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum er í fjórða lagi nýjum kafla bætt við lög um hlutafélög
    sem kveður á um gagnsæi stofnanafjárfesta, aðila sem veita
    eignarstýringarþjónustu og umboðsráðgjafa. Stofnanafjárfestar og þeir sem
    sinna eignarstýringu eru mikilvægir hluthafar félaga sem hafa hlutabréf
    sín tekin til viðskipta á skipulögðum markaði og geta haft veruleg áhrif á
    stjórnarhætti félaganna. Undir stofnanafjárfesta falla vátryggingafélög
    með starfsleyfi yfir líftryggingum, vátryggingafélög með starfsleyfi til
    endurtryggingastarfsemi og starfstengdir eftirlaunasjóðir. Þeim verður nú
    skylt að birta stefnu um þátttöku sína sem hluthafar og greina árlega frá
    því hvernig þeirri stefnu hefur verið framfylgt og atkvæðisréttur verið
    nýttur. Rétt er að taka fram að ákvæðin ná ekki til lífeyrissjóða samkvæmt
    lögum nr. 129/1997. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Frumvarp þetta var unnið í samráði við helstu haghafa og
    var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar. Alls bárust þá sex umsagnir
    og var tekið mið af þeim við lokafrágang frumvarpsins. Verði frumvarpið
    óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir því að af hljótist kostnaður fyrir
    ríkissjóð. Með lagasetningunni er stuðlað að auknu trausti og
    trúverðugleika í íslensku viðskiptalífi, hraðari og öruggari
    upplýsingamiðlun tryggð, hvatt til þátttöku aðila sem hyggja á
    langtímafjárfestingu og stjórnarhættir á hlutabréfamarkaði efldir.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokinni þessari umræðu hér legg ég til að frumvarpinu verði
    vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar. </ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>