<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-16T16:01:10" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:04:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:01:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="3">
      <ns:málsheiti>menningarminjar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á
    lögum um menningarminjar. Samkvæmt lögunum eins og þau eru í dag eru öll
    hús og mannvirki sem voru byggð árið 1923 eða fyrr friðuð á grundvelli
    aldurs. Auk þess mæla lögin fyrir um verndun annarra húsa og mannvirkja
    sem voru síðar á árunum 1924–1940, sem felur þá í sér að eigendur þeirra
    húsa og mannvirkja þurfa að leita álits Minjastofnunar Íslands áður en
    þeir mega breyta, flytja eða rífa mannvirkin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með þessu frumvarpi erum við að leggja til mikilvæga einföldun með
    því að kippa burt þessari skyldu og í staðinn verði þá almenningi og
    sveitarfélögum veitt heimild til að leita álits Minjastofnunar Íslands
    óháð byggingarári húss eða mannvirkis. Álitsskyldan, eins og henni er
    háttað í dag, tekur stóran skerf af vinnu tveggja sérfræðinga
    Minjastofnunar Íslands í húsvernd. Mál af þessu tagi voru vel yfir 100
    árið 2025. Oftast er veitt álit um byggingarleyfisskyldar breytingar á
    húsum, t.d. varanlegar breytingar á ytra útliti, viðbyggingar, svalir,
    utanhússklæðningar og breytingar á gluggaskipan svo sem ef eigandi vill
    opna út í garð. Hús og mannvirki sem falla undir álitsskyldu eru yfir
    8.000 talsins eða tæplega tveir þriðju hlutar af öllum þeim húsum og
    mannvirkjum sem falla undir lög um menningarminjar. Langflest þessara húsa
    hafa aldrei áður komið til kasta stofnunarinnar og þau ekki forskráð hjá
    henni. Álitsskyldan hefur reynst íþyngjandi fyrir sveitarfélög og
    húseigendur. Það er grundvallaratriði að ekki eru talin nægjanlega sterk
    fagleg rök sem réttlæti áframhaldandi skyldu til að óska eftir og veita
    álit vegna húsa út frá byggingarári einvörðungu, ekki síst sé haft í huga
    að lagaákvæðið felur ekki í sér þá lögbundnu vernd sem ætla mætti. Um er
    að ræða leiðbeinandi álit.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ljóst er að hvorki er hægt né æskilegt að vernda allar
    menningarminjar. Það er þörf á faglegum rökum fyrir vernd. Þá má ætla að
    skynsamlegra sé að sérfræðingum Minjastofnunar Íslands sé veitt svigrúm
    til að fást frekar við friðuð og friðlýst hús og mannvirki og önnur
    varðveisluverð hús sem falla utan aldursviðmiða, t.d. höfundarverk okkar
    merkustu arkitekta eða yngri hús sem bera vitni um tímabil eða atburði sem
    mótuðu sögu okkar á síðustu öld. Auk þess hefur reynslan sýnt að
    almenningur leitar jafnframt til stofnunarinnar um hús og mannvirki byggð
    eftir 1940. Núverandi fyrirkomulag hefur í raun dregið úr getu
    Minjastofnunar Íslands til þess að fjalla á vandaðan hátt um öll mál sem
    til lengri tíma geta haft neikvæð áhrif á aðra húsvernd í landinu og það
    er mitt mat að með þessu frumvarpi séum við að fækka hindrunum í kerfinu
    og beina sérfræðiþekkingu Minjastofnunar Íslands að því sem skiptir mestu
    máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég hef rakið meginefni þessa frumvarps og legg
    til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. allsherjar- og
    menntamálanefndar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>