<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T16:04:33" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:05:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:04:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="3">
      <ns:málsheiti>menningarminjar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir
    framsöguna og jafnframt þakka fyrir að þetta mál sé hér fram komið. Ég
    held að þetta sé mikilvægt einföldunarmál og mikilvægt að við höldum áfram
    að reyna að einfalda löggjöf eins og við getum. En mig langar bara aðeins
    til að forvitnast hjá hæstv. ráðherra, af því við erum komin fram með
    þetta frumvarp, hvort við hefðum ekki í rauninni átt að nýta ferðina og
    athuga hvort það væri ekki fleira í þessum lögum sem við einmitt ættum að
    taka til hendinni með til einföldunar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>