<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-16T16:05:24" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:07:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:05:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="3">
      <ns:málsheiti>menningarminjar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta innlegg.
    Jú, ég held að það sé full ástæða til að nýta ferðina almennt þegar verið
    er að breyta lögum og ég hvet nefndina til að hafa augun opin fyrir því
    hvort það séu fleiri atriði í þessum lagabálki sem kalla á einföldun og
    breytingar sem miða að aukinni skilvirkni o.s.frv. og um leið styrkari
    vernd menningarminja. Þetta var yfirfarið í ráðuneytinu og niðurstaðan var
    að leggja þetta fram með þessum hætti, m.a. í von um að málið fengi
    skjótari meðferð. Það er líka vandkvæðum bundið að troða of mörgum atriðum
    í eitt frumvarp sem hugsanlega tengjast ekkert endilega. Það getur líka
    þyngt málsmeðferð þegar kemur að breytingum og við höfum metið það svo að
    þetta sé breyting sem liggi á til að stofnunin geti einbeitt sér að því
    sem mestu skiptir. En um leið hvet ég nefndina til að skoða með gagnrýnum
    augum og velta fyrir sér hvort ástæða sé til að gera frekari breytingar.
    Þetta er reyndar mál sem ég held að ég hafi lagt fram nokkurn veginn í
    þessari mynd á fyrsta löggjafarþinginu okkar, eitt af þeim málum sem
    dagaði uppi í málþófinu um sumarið. Þar var það raunar þannig að þegar við
    lögðum til ákveðnar breytingar í samráðsgátt þá lagði Minjastofnun til að
    gengið yrði enn lengra í einföldunarátt, sem við og gerðum þegar
    frumvarpið kom fram, og þannig er frumvarpið jafnframt nú þegar við
    leggjum það fram öðru sinni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>