<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-16T16:08:42" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:14:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:08:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um
    breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum annars vegar
    og lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála, hins vegar.
    Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að
    ganga. Nú er það lagt fram að nýju efnislega óbreytt að frátöldum lítils
    háttar breytingum sem gerð er grein fyrir í greinargerð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varnir gegn ofanflóðum eru eitt mikilvægasta velferðar- og
    öryggismál samtímans á Íslandi. Þetta er verkefni sem aldrei lýkur heldur
    kallar á stöðugt viðhald, endurbætur og aðlögun að nýrri þekkingu og
    breyttum aðstæðum. Gildandi lög voru sett í kjölfar harmleikjanna á
    Vestfjörðum árið 1995 með það skýra markmið að koma í veg fyrir manntjón.
    Síðan þá hafa varnarvirki víða um land sannað gildi sitt aftur og aftur og
    bjargað bæði mannslífum og verðmætum. Náttúruöflin minna okkur reglulega á
    mátt sinn. Atburðirnir á Flateyri og í Súgandafirði árið 2020,
    skriðuföllin á Seyðisfirði sama ár og snjóflóðin á Austfjörðum árið 2023
    hafa til að mynda sýnt okkur að það er löngu tímabært að styrkja
    lagaumgjörð ofanflóðavarna enn frekar. Við þurfum skýrari reglur,
    markvissari ábyrgðarskiptingu og tryggari fjármögnun til að verja byggðir
    landsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Með frumvarpi þessu er stigið stórt skref í þá átt. Í
    fyrsta lagi er markmiðsákvæði laganna gert afdráttarlausara. Þar er kveðið
    skýrt á um að meginmarkmið laganna sé að aftra manntjóni og slysum af
    völdum ofanflóða með sérstakri áherslu á heimili fólks, menntastofnanir og
    heilbrigðisstofnanir. Þessi forgangsröðun er leiðarljós við alla framkvæmd
    laganna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í öðru lagi felur frumvarpið í sér að skerpt er á reglum um
    innheimtu ofanflóðagjalds auk þess sem veigamiklar breytingar eru lagðar
    til á kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Breytingarnar miða
    að því að einfalda stjórnsýslu og tryggja að fjárhagur sveitarfélaga
    standi ekki í vegi fyrir nauðsynlegu viðhaldi varnarvirkja. Lagt er til að
    hlutdeild ofanflóðasjóðs í kostnaði við undirbúning og framkvæmdir við
    varnarvirki, uppkaup eigna eða eignarnám, svo og í kostnaði við flutning
    fasteigna hækki úr allt að 90% í allt að 99%. Samhliða þessu eru felld
    brott ákvæði um lánveitingar úr ofanflóðasjóði til sveitarfélaga vegna
    þeirra eigin kostnaðarhlutar. Í dag er staðan sú að vegna hagstæðra
    lánakjara og niðurfellingarákvæðis samkvæmt núgildandi lögum hafa
    sveitarfélög í raun einungis greitt um 1% af þessum kostnaði. Því hefur
    þessi breyting, að hækka hlutdeild ríkisins úr 90 í 99% en afnema lánin,
    hvorki í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð né sveitarfélög heldur
    er hér fyrst og fremst um að ræða einföldun á stjórnsýslu og
    fjármögnunarferlinu. Öðru máli gegnir um viðhald varnarvirkja. Þar er lagt
    til að hlutdeild ofanflóðasjóðs hækki úr allt að 60% í allt að 99%. Hér er
    um að ræða raunverulega tilfærslu á kostnaði frá sveitarfélögum til
    ríkisins en gert er ráð fyrir að þessi breyting á viðhaldskostnaði hafi í
    för með sér aukin útgjöld fyrir ofanflóðasjóð og þar með ríkissjóð sem
    nema að jafnaði 150–250 millj. kr. á ári. Viðhald varnarvirkja er
    lykilforsenda þess að þau veiti það öryggi sem til er ætlast en líftími
    þessara mannvirkja er áætlaður 80–150 ár. Það er mat okkar að hætta sé á
    að sveitarfélög, sem mörg hver búa við þröngan kost, gætu neyðst til að
    fresta nauðsynlegu viðhaldi ef þau bera stóran hluta kostnaðarins þannig
    að við erum að létta þarna verulegri byrði af þeim sveitarfélögum sem búa
    við ofanflóðahættu og tryggja að varnarvirkjum verði viðhaldið af
    myndarskap óháð fjárhagsstöðu einstakra sveitarfélaga. Þetta er
    fjárfesting í öryggi sem skilar sér margfalt til baka.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þriðja lagi er tekið á vandamáli sem hefur skapast vegna
    vetrardvalar í íbúðarhúsum á hættusvæðum, þá er ég að tala um hús sem hafa
    verið keypt upp með fé ofanflóðasjóðs, endurseld síðar á almennum markaði
    með kvöð um að dvöl í þeim takmarkist við sumartímann en eru sum hver
    þrátt fyrir það nýtt að vetrarlagi. Það stríðir gegn markmiðum laganna að
    fólk dvelji jafnvel vetrarlangt í húsum sem hið opinbera hefur keypt upp
    ef markmiðið með uppkaupunum var einmitt að útrýma þörf á vöktun og
    rýmingum í hættuástandi og í staðinn tryggja öryggi íbúa á varanlegan
    hátt. Í frumvarpinu er einnig lagt til að sveitarfélögum verði gert
    óheimilt að selja eignir sem þessar nema til flutnings af hættusvæði og er
    þannig komið í veg fyrir að fleiri fasteignir verði endurseldar eftir að
    þær eru keyptar upp líkt og áður var lýst. Þá er kveðið á um að þinglýsa
    skuli kvöð um nýtingartíma á þessar eignir. Slík kvöð hvílir í dag á
    eignum sem keyptar hafa verið upp og síðar endurseldar en verði frumvarpið
    að lögum verður skylda til þinglýsingar slíkrar kvaðar lögfest. Síðast en
    ekki síst verður lögreglustjóra veitt skýr heimild til að framfylgja banni
    við dvöl í umræddum eignum á tímabilinu 1. nóvember til 30. apríl, m.a.
    með beitingu sekta. Með þessu erum við að tryggja að opinberum fjármunum
    sem varið er til uppkaupa á fasteignum sé raunverulega varið til að fækka
    fólki á hættusvæðum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fjórða lagi er horft til framtíðar í skipulagsmálum. Lagt er til
    að á áður óbyggðum svæðum verði óheimilt að skipuleggja nýja íbúðabyggð
    eða atvinnusvæði nema tryggt sé að áhætta sé ásættanleg án þess að reisa
    þurfi sérstök varnarvirki. Það er mikilvægt að koma í veg fyrir að byggð
    þróist inn á hættusvæði sem síðar gæti þurft að verja eða kaupa upp vegna
    hættu á ofanflóðum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum, virðulegi forseti, felur frumvarpið í sér breytingu á
    lögum um Vegagerðina. Vegagerðin býr yfir mikilli sérþekkingu á
    jarðvegsframkvæmdum og umsjón með undirbúningi framkvæmda af slíkum toga.
    Með frumvarpinu er lagt til að Vegagerðinni verði heimilt að taka að sér
    verkefni fyrir ríki og sveitarfélög á sviði ofanflóðavarna samkvæmt
    samningi. Þannig nýtum við bestu fáanlegu þekkingu og tækniþekkingu til að
    hámarka árangur og hagkvæmni í þessum stóru framkvæmdum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Ofanflóðavarnir kalla á að við séum stöðugt á vaktinni og
    með þessu frumvarpi erum við að stíga mikilvæg skref til að styrkja varnir
    landsins, tryggja fjármögnun til framtíðar og skýra leikreglurnar.
    Markmiðið er eitt og hið sama, að tryggja öryggi landsmanna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað
    til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og svo til 2. umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>