<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T16:15:02" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:17:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:15:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagninguna
    og ræðuna. Mér sýnist nú að þarna sé bara mjög margt til mikilla bóta. En
    það er einn þátturinn sem kemur mér nokkuð á óvart að sjá ekki. Forsagan
    er sú að í minni tíð í ráðuneytinu skoðuðum við sérstaklega, og það var á
    þingmálaskrá sömuleiðis, breytingar á þessum lögum en þá var náttúrlega
    útgangspunkturinn að við værum líka að vernda atvinnusvæðin. Markmiðið er
    auðvitað að vernda líf og náttúran veit bara ekkert af þessum lögum. Eins
    og t.d. á Seyðisfirði þegar ofanflóðin komu var náttúran ekkert að taka
    tillit til laganna og fór á atvinnusvæði og þar var mesta mildi að ekki
    fór verr. En það er ekki bara það að þetta snúist um að fólk geti verið að
    vinna þegar svona flóð koma — þó svo við reynum að vakta það svo við getum
    þá getum við aldrei fyrirbyggt það fullkomlega og sérstaklega með þessar
    nýju ógnir sem eru komnar sem eru skriðuföll sem við því miður munum
    örugglega sjá meira af og það er erfiðara fyrir okkur að geta fundið út úr
    því þetta er svo nýtilkomið út af breytingum í loftslagi. En í ofanálag:
    Hvernig á samfélag að virka ef atvinnusvæðin eru ekki vernduð? Hví skyldi
    einhver setja fjármuni í húseignir og atvinnustarfsemi ef það getur
    þurrkast út einhvern tímann á einum degi? <!--Heyri ekki hvað hann segir, 16:16:50 ☺-->
    Ég hafði miklar áhyggjur af fjármununum á sínum tíma en síðan gerðum við
    fasteignamatið sem gerði það að verkum að það leystist af sjálfu sér því
    að fjármunirnir í sjóðnum eru svo miklir. Þannig að ég spyr hæstv.
    ráðherra: Af hverju eru ekki atvinnusvæðin þarna inni?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>