<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-16T16:17:14" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:19:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:17:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög
    málefnalegt innlegg og þetta er auðvitað eitthvað sem við verðum að huga
    að til framtíðar. Ég veit að þegar frumvarp sem var að mörgu leyti
    sambærilegt því sem nú er lagt fram kom fram árið 2020 var þetta mjög
    dóminerandi í umfjöllun nefndarinnar. Ef við skoðum bara
    lögskýringargögnin frá því að lögin um ofanflóðavarnir voru sett á sínum
    tíma þá kemur þar mjög skýrt fram að tilgangur laganna sé að verja
    mannslíf og koma í veg fyrir slys á fólki. Þar er tekin sú afstaða að
    forgangsraða sérstaklega vörnum fyrir íbúðarhús fram yfir atvinnuhúsnæði
    af þeirri ástæðu að fólk dvelur mest heima hjá sér, mestan hluta
    sólarhringsins. Þetta var megintilgangurinn með setningu laganna, að allir
    gætu sofið rólegir heima hjá sér óháð búsetu og um leið að mennta- og
    heilbrigðisstofnunum væri veitt ákveðin forgangsröðun. Eins og ég hugsa
    þetta þá skiptir miklu máli og er mikilvægt til framtíðar að verja
    atvinnuhúsnæði að einhverju marki líka. Ég tel hins vegar heillavænlegt að
    forgangsraða áfram með þessum hætti og hnykkja þannig á eða auka skýrleika
    markmiðsákvæðis laganna til samræmis við það sem lagt var upp með í
    upphafi og jafnframt þá forgangsraða í raun þeim ofanflóðaframkvæmdum sem
    enn eiga eftir að eiga sér stað sem eru til þess fallnar að verja
    íbúðarhús og svo að huga að hinu. Það er ekki endalaus framkvæmdageta og
    það gildir um þetta eins og allt annað að forgangsraða fjármagni og
    framkvæmdum. Ég tel að þetta hafi verið skynsamleg forgangsröðun á þessum
    tíma og eigi að vera þannig áfram en fagna að öðru leyti umræðu um þetta
    mál. Þetta er auðvitað spurning sem er sjálfsagt að velta upp. Til
    framtíðar er full ástæða til að huga að mögulegum lagabreytingum sem miða
    að þessu líka.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>