<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T16:19:40" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:21:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:19:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og
    hæstv. ráðherra fer alveg vel yfir forsögu málsins, þ.e. aftur. Ég skil
    mjög vel og ég held að við getum vel skilið, sérstaklega eftir þessi
    hræðilegu slys, að þá vorum við að fara í eitthvað sem hlutfallslega var
    miklu stærra á sínum tíma og það þurfti að forgangsraða. Ég hef alveg
    skilning á því. Hins vegar létum við taka þetta út og þetta eru ekki mörg
    svæði, sem atvinnusvæði. Þessi gögn eiga að vera til í ráðuneytinu. Við
    Sjálfstæðismenn munum leggja áherslu á að koma með breytingartillögu um að
    atvinnusvæðin séu þarna inni. Þetta er ekki, sem betur fer, fjárhagslega
    óyfirstíganlegt eða slíkt, það er alls ekki þannig. Hins vegar segir það
    sig sjálft að í samfélagi verður að hafa atvinnu og svo þarf fólk að geta
    búið þar. Þú stoppar það að fólk fjárfesti í atvinnusvæðum ef þau eru ekki
    varin. Það er ekkert flóknara en það, það er enginn sem tekur áhættu á
    slíku. Í ofanálag, af því að við viljum auðvitað að vernda mannslíf og sjá
    til þess að þetta geti verið blómleg samfélög, þá þekkir náttúran ekki
    lögin. Ég hvet alla til að skoða safnið á Seyðisfirði eða minnisvarðana
    sem eru þar um skriðuföllin, þeir segja í rauninni miklu meira heldur en
    mörg orð. Mér finnst það verða að vera útgangspunkturinn í þessari vinnu
    okkar í máli sem ég trúi ekki öðru en að það geti náðst breið samstaða um.
    Ég hvet hæstv. ráðherra og ríkisstjórnarflokkana til að endurskoða þessa
    afstöðu. Við getum ekki farið í breytingarnar núna og sleppt því að taka
    atvinnusvæðin með. Ég held að allir sem hugsi það átti sig á því að það
    gengur ekki. Að öðru leyti sýnist mér þetta vera bara mjög góðar
    breytingar en við megum ekki sleppa þessu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>