<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-16T16:22:03" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:23:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:22:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hef svo sem ekki miklu við það að bæta sem
    ég sagði áðan. Ég kannski bendi á að það er ekkert í lögunum sem kemur í
    veg fyrir það í sjálfu sér að farið sé í að verja atvinnuhúsnæði. Ég held
    hins vegar að það sé heillavænlegt að við forgangsröðum áfram
    íbúðarhúsnæði eins og gert hefur verið en það er alveg svigrúm til að
    ganga lengra. En ég held að það væri óheppilegt ef áhersla á verndun
    atvinnusvæða yrði á kostnað hins. Ég held að það sé mikilvægt að hafa
    forgangsröðunina skýra samkvæmt lögunum en tek að öðru leyti undir með hv.
    þingmanni að til framtíðar er mikilvægt að horfa einnig til verndunar
    atvinnuhúsnæðis einmitt til að tryggja blómlega byggð og að það sé
    fjárfestingarvilji á svæðum þar sem ofanflóðahætta er fyrir
    hendi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>