<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T16:23:17" skst="ÞórP" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:25:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:23:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir
    framsöguna á þessu ágæta máli. Mig langar að taka boltann þar sem skilið
    var við hann hér af síðasta ræðumanni, þ.e. hæstv. ráðherra og sömuleiðis
    hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Ég skil hæstv. ráðherra mjög vel varðandi
    forgangsröðun á þeim verkum sem hægt er að fara í. Við þekkjum það líka að
    með breytingu á tíðarfari erum við sömuleiðis að glíma við allt aðrar
    aðstæður en þegar farið var af stað á sínum tíma þegar það var fyrst og
    fremst verið að horfa til þess að verjast snjóflóðum. Ég held að það sé
    mjög mikilvægt í því samhengi í vinnu þeirrar hv. nefndar sem tekur þetta
    mál að lokinni þessari umræðu að farið verði gaumgæfilega yfir það hvar
    hugsanlega þessar hættur eru. Vissulega eru það þessi aurflóð sem
    væntanlega orsakast af því að sífreri til fjalla er að gefa eftir. Við
    búum nú einu sinni þannig hér á þessu landi að flestar byggðir eða mjög
    stór svæði eru akkúrat þarna undir þó svo að það sé ekki fyrir hendi hætta
    á snjóflóðum. Þetta held ég að sé mjög mikilvægt að skoða.</ns:mgr>

    <!--... Má hlusta aftur á 16.24:56-->

    <ns:mgr>Í lokin á fyrra andsvari til hæstv. ráðherra vil ég spyrja hvort
    einhverjar greiningar liggi fyrir í ráðuneytinu sem snúa að því fjármagni
    sem við gætum hugsanlega þurft að nýta í framhaldinu ef við tækjum þá
    stærri skref. En ég ítreka það, frú forseti, að ég skil mjög vel
    forgangsröðun ráðherra í þessu máli. Ég held að það sé mjög mikilvægt samt
    að nefndin fari ofan í þetta svona hvað í framtíðinni.</ns:mgr>

    <!--svo það gerist ekki í framtíðinni? Má hlusta 16:25:30-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>