<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-16T16:25:47" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:27:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:25:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt innlegg.
    Það er margt til í því sem hv. þingmaður kom inn á. Nú er auðvitað unnið
    að heildstæðu hættumati vegna skriðufalla og kortlagningu sem mun hjálpa
    okkur að varpa ljósi á það hversu stór svæði þetta eru helst sem eru
    undir, þ.e. atvinnusvæði. Ég þykist vita að það sé til greining á
    mögulegum kostnaði við þetta þótt ég sé ekki með hana fyrir framan mig, en
    það er alveg ljóst að kostnaðurinn hleypur á einhverjum milljörðum. Í dag
    er það þannig að samkvæmt áætlunum okkar verður búið að verja allt
    íbúðarhúsnæði á helstu hættusvæðum árið 2032 eða 2033, ef ég man rétt. Við
    erum að reyna að ýta tímalínunni framar eftir því sem kostur er og settum
    þess vegna t.d. aukna fjármuni í ofanflóðavarnir í fjármálaáætlun og
    fjárlögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vek athygli á því að það sem hér er um að tefla er orðalag í 1.
    gr. laganna, markmiðsákvæðinu, að markmið laga þessara sé að aftra
    manntjóni og slysum af völdum ofanflóða, einkum á heimilum og mennta- og
    heilbrigðisstofnunum, og skal unnið að því samkvæmt lögum þessum. Þetta er
    í samræmi við það sem við lesum út úr lögskýringargögnum laganna eins og
    þau voru lögð fram 1997. Ég held að það sé heillavænlegt að halda í þessa
    tilteknu forgangsröðun en ég held að það geti líka verið hollt fyrir
    nefndina og okkur að taka umræðu um framhaldið. Ég ítreka hins vegar að ég
    held að það sé mikilvægt að við höldum okkur við það að við leggjum
    áherslu á að verja íbúðarhúsnæði fyrst og huga svo af alvöru að
    atvinnuhúsnæðinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>