<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T16:28:01" skst="ÞórP" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:30:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:28:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir sitt andsvar
    og tek undir með hæstv. ráðherra hvað það varðar að að sjálfsögðu er
    mannslífið alltaf í fyrsta sæti þegar kemur að því hvað við verjum. Við
    megum ekki gleyma því að við erum líka að verja mannslíf þegar við t.d.
    erum að loka vegum fyrir ofanflóðum. Ég held að allir geri sér grein fyrir
    því að það er, ég vil ekki segja að það sé ómögulegt en það er mjög há
    brekka að klífa að ætla að reyna að verja allar stofnæðar og vegi
    landsins. Þá er þetta sá kafli sem við getum nýtt okkur í þessu samhengi,
    þ.e. lokanir. Og af því að hér var verið að ræða um atvinnustarfsemi og
    sömuleiðis fáum við oft fréttir af því að það eru oft lokanir eða vakt á
    umferð í kringum hesthús á vissum stöðum, t.d. í Bolungarvík ef ég man
    rétt, þá þurfum við vissulega alltaf að forgangsraða. Ég held að það sé
    samt mjög mikilvægt í vinnu nefndarinnar og með hæstv. ráðherra að fara
    vel og gaumgæfilega yfir hvað mögulega er hægt að gera, en að sjálfsögðu
    verður það alltaf þannig að við setjum mannslífið í fyrsta sæti, hvernig
    við verjum það. Sums staðar verður það þannig að við getum ekki varið
    allar fasteignir, hvort sem það eru fasteignir sem eru notaðar í
    atvinnustarfsemi eða hús. Það er óhjákvæmilegt. Við vitum að náttúran er
    nær óútreiknanleg sömuleiðis en við þurfum að vinna með henni. Þá þurfum
    við líka alltaf að hafa þar einhverjar ákveðnar forsendur og fylgja því
    plani, ef ég má orða það svo, frú forseti, sem lagt er upp með af okkar
    færasta vísindafólki þegar kemur að rýmingu og öðru og sömuleiðis varðandi
    lokanir á vegum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>