<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-16T16:30:20" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:31:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:30:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Ég vil líka
    nýta tækifærið og segja að ég held að við Íslendingar getum verið mjög
    stoltir af þeirri umgjörð sem við höfum byggt utan um ofanflóðavarnir, af
    lagaumgjörðinni og starfseminni og þeim varnarvirkjum sem við höfum reist
    í gegnum tíðina og hafa aftur og aftur sannað gildi sitt. En það er
    auðvitað þannig að það þarf alltaf að forgangsraða. Það eru fórnarskipti í
    þessu eins og öðru þegar kemur að því að ákveða hvernig fjármunir eru
    nýttir og skriðuföll eru auðvitað eitthvað sem þarf að kortleggja
    sérstaklega. Þar sjáum við aukna ógn vegna loftslagsbreytinga. Landslagið
    okkar er að breytast. Náttúran er að breytast vegna loftslagsbreytinga og
    þá þurfum við að gæta þess að lagaumgjörðin um ofanflóðavarnir fylgi í
    kjölfarið þannig að við séum alltaf einu skrefi á undan
    náttúruöflunum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>