<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T16:31:39" skst="BÞT" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:32:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:31:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil beina þessum orðum til hæstv. ráðherra
    sem fjallar um frumvarpið um breytingar á lögum um varnir gegn snjóflóðum
    og skriðuföllum. Ég vil brýna ráðherra í því að ganga aðeins lengra,
    örlítið lengra. 12. gr. frumvarpsins snýr að óheimilli dvöl í húsum sem
    hafa verið keypt upp eða tekin eignarnámi. Leyfilegur dvalartími er
    yfirleitt skilgreindur með þinglýstum kvöðum eða annarri ákvörðun. Ég hef
    áhyggjur af því að það skuli ekki vera algerlega skýrt í lögum að hvers
    konar ólögleg dvöl — að það sé ekki hægt að nota það sem skálkaskjól að
    menn séu að fara í viðhald eða eftirlit með eignum. Að mínu viti, eftir
    ágætisreynslu af þessum málaflokki, þarf að setja þetta í þann farveg að
    þá þurfi að leita samþykkis fyrir fram, annaðhvort hjá lögreglu eða
    Veðurstofu eða þeim sem kemur til með að hafa þessar heimildir. Ég vildi
    bara benda á þetta atriði öðrum fremur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>