<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T16:33:02" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 16:38:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T16:33:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="4">
      <ns:málsheiti>varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég tek undir þakkir til hæstv. ráðherra fyrir
    að koma fram með þetta frumvarp. Það er mikilvægt og ég þekki þessi mál
    vel því það var á þingmálaskránni að koma með frumvarp sem átti að taka á
    mörgum málum. En aðalatriðið er þó þetta og ég ætla bara aðeins að fara
    yfir ástæðuna fyrir því að ég er að taka þetta upp hér í þessari umræðu um
    atvinnusvæðin. Ég held að ég fari algerlega rétt með að túlkunin fram til
    þessa hafi verið sú að það sé ekki heimild innan laganna til að vernda
    atvinnusvæðin. Við skiljum öll að það hlýtur alltaf að vera forgangurinn
    að aftra manntjóni eins og hér segir en náttúran er eins og hún er. Eins
    og kom fram hjá hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni sjáum við mjög miklar
    breytingar í náttúrufarinu. Það er okkar nýja ógn því að við þekkjum
    snjóflóðaógnina þokkalega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér fannst áhugavert að heyra að eitt af því sem þeir færu
    vísindamenn, sem eru að vinna að þessum forvörnum og reyna að vakta þetta
    og sömuleiðis að sjá fyrir hvað getur gerst, gerðu var að tala við eldra
    fólk til að rifja upp hvar snjóflóðin hefðu fallið því að ef snjóflóð
    hefur einhvern tímann fallið fyrir 80 árum eða 100 árum getur það fallið
    aftur á sama stað. Síðan erum við að sjá þessa nýju ógn sem eru þessar
    aurskriður og skriðuföll sem eru til komin vegna þess að það hlýnar í
    veðri og þessi sífreri eða þetta frost sem heldur aftur af efninu í
    fjöllum er að gefa eftir. Það þýðir að við getum séð og höfum séð
    aurskriður og skriðuföll sem við höfum aldrei séð áður. Það er mjög erfitt
    að gera ráðstafanir til að vita hvernig þessi mál þróast og vöktun á
    einhverju sem við þekkjum lítið er auðvitað erfiðari og flóknari.
    Seyðisfjörður er gott dæmi um slíkt mál sem ég vona að við sjáum aldrei
    aftur en það getur enginn fullyrt það og því miður eru meiri líkur en
    minni á að það gerist. Fyrir liggja skoðanir á því hvað það myndi kalla á
    í kostnaði að verja atvinnusvæðin. Ég hvet hv. þingnefnd til að skoða það
    og kalla eftir því og fara yfir það því að þó að við skrifum að við ætlum
    að halda aftur af manntjóni og við ætlum að vernda, við getum sagt, alla
    mannabústaði, þá getur þetta svo sannarlega, og snjóflóðin líka, fallið á
    atvinnuhúsnæði. Sömuleiðis með þessa nýju ógn sem við getum orðað sem svo,
    alla vega ógn sem er að aukast mikið og þá er ég að vísa í skriðuföllin og
    aurskriðurnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti, ég bið hv. þingnefnd og hæstv. ráðherra að
    skoða þessi mál betur. Við tökum ekki svona mál upp á hverjum degi og við
    tryggjum ekki eftir á í þessu frekar en öðru. Við þurfum auðvitað alltaf
    að forgangsraða. Við getum ekki klárað þetta á einu augabragði enda er
    þetta verkefni sem hefur tekið langan tíma og mun taka einhvern tíma í
    framtíðinni. En þetta er rétti tímapunkturinn til að koma með þessa
    breytingu inn í lögin og auðvitað þarf alltaf að forgangsraða og það eru
    áætlanir nú þegar sem menn eru væntanlega að vinna eftir. En það er
    mikilvægt að huga strax að atvinnusvæðunum og gefa þau skilaboð að við
    ætlum að vernda þau og eftir því sem kostur er að gera það eins hratt og
    mögulegt er. Eitt hefur hjálpað til í þessu. Það er að skattstofninn hefur
    aukist mikið og þar af leiðandi innstreymi í sjóðinn sem ætti að auðvelda
    okkur verkefnið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég bið hv. þingnefnd og hæstv. ráðherra í mestu
    vinsemd að skoða þetta. Þetta mál, eftir því sem ég best veit, hefur verið
    í þverpólitískri sátt fram til þessa. Ég er alveg sannfærður um að ef hv.
    þingmenn setjast vel yfir þetta og skoða þetta sé hægt að vinna þetta
    áfram í þverpólitískri sátt. Aftur legg ég áherslu á að við verðum að hafa
    atvinnusvæðin þarna inni. Það held ég að allir sjái sem skoða og ég er
    fullur bjartsýni um að það geti orðið, virðulegi forseti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>