<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T13:31:22" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:33:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:31:22">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="31">
      <ns:málsheiti>bann við hvalveiðum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Nú hefur hæstv. atvinnuvegaráðherra boðað enn
    eitt frumvarpið sem snýr að sjávarútvegi. Líkt og venjan er hjá hæstv.
    ríkisstjórn snúa nær allar aðgerðir hennar á sviði atvinnuveganna að því
    að hamla eða skattleggja atvinnulífið og reyndar helst hvort tveggja. Nú
    er hins vegar kveðið við annan og verri tón. Nú á að banna heila
    atvinnugrein eins og hún leggur sig; atvinnugrein sem hefur mikil áhrif á
    atvinnuöryggi og lífskjör fólks í Norðvesturkjördæmi. Þessi vegferð hæstv.
    atvinnuvegaráðherra vekur sérstaka furðu í ljósi þess að enginn einhugur
    er um málið. Þrír hv. þingmenn meiri hlutans, þar á meðal tveir úr flokki
    hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, hafa lýst eindregnum stuðningi við
    hvalveiðar. Þá kom í ljós í pallborði <ns:skáletrað>Vísis</ns:skáletrað>
    fyrir skemmstu að enginn þingflokksformanna stjórnarflokkanna væri
    andvígur hvalveiðum. Það virðist því í raun allt benda til þess að ekki sé
    einu sinni þingmeirihluti fyrir málinu á Alþingi. Því vil ég spyrja hæstv.
    mennta- og barnamálaráðherra hvort hún telji í ljósi versnandi
    efnahagsástands og vaxandi atvinnuleysis sem íslenskur almenningur býr við
    að ráðlegt sé að banna heila atvinnugrein sem mun leggjast þungt á
    almenning á landsbyggðinni. Telur ráðherra það líklegt til að hjálpa til í
    baráttunni við vexti? <!--Hann segir alltaf barna- og menntamálaráðherra, ég svissa því / ii--></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>