<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-17T13:33:17" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:35:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:33:17">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="31">
      <ns:málsheiti>bann við hvalveiðum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, hvort það
    eigi að banna hvalveiðar. Það óneitanlega fær mig til að velta því upp
    hversu sjálfbærar hvalveiðarnar eru. Nýjasta útspil þess eina einstaklings
    sem hefur staðið að þessari atvinnugrein er að hann segir að í rauninni sé
    engin eftirspurn eftir kjötinu sjálfu en það megi þó alltaf þurrka það og
    setja það á belgi fulla af járni og bætiefnum til að gefa okkur hinum sem
    virðast vítt og breitt um heimsbyggðina þjást af járnskorti. Þetta þótti
    mér nú afskaplega einkennilegt útspil, ég verð að viðurkenna það. En, hv.
    þingmaður, sitt sýnist hverjum og ég hef ekki verið á móti því að nýta
    afurðir til manneldis þegar þær eru sjálfbærar og þegar við erum að nýta
    okkar eigin auðlindir. En ég er líka á hinni blaðsíðunni, ég er afskaplega
    mikið fyrir dýravelferð. Ég er t.d. mjög mikið á móti blóðmerahaldi,
    samanber nýjan dóm EFTA-dómstólsins, sem væntanlega verður tekinn fyrir í
    héraði í sambandi við blóðmerahald. Þegar við sjáum að það er verið að
    drepa hvali og það tekur upp í hálftíma iðulega að aflífa skepnuna þá
    flokka ég það undir dýraníð. Ég vildi gjarnan, ef við erum að drepa dýr
    til a.m.k. manneldis og nýta okkur þau, að það yrði gert á mannúðlegan
    hátt og ef við getum ekki gert það á mannúðlegan hátt þá hljóta líka að
    vakna upp þær siðferðilegu spurningar hvort það sé rétt að viðhalda slíkum
    veiðiskap.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En fyrst og síðast, hv. þingmaður, þá höfum við ekki verið að
    leggjast gegn því að nýta sjávarfang eða annað til manneldis og til að
    skapa okkur aukna atvinnu og aukna skatta. En hvalveiðar per se — þær eru
    hins vegar í mínum huga farnar að gera meira en að orka tvímælis.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>