<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T13:35:38" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:36:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:35:38">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="31">
      <ns:málsheiti>bann við hvalveiðum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra
    fyrir ærlegt svar. Mig langar samt til að benda hæstv. ráðherra á að það
    er ekki rétt hjá hæstv. ráðherra að dauðastríðið taki að jafnaði tuttugu
    mínútur til hálftíma í hvert sinn sem hvalur er skotinn. Það er ekki alls
    kostar rétt og það er reyndar kolrangt. Langstærstur hluti dýra deyr strax
    við fyrsta skot og kvelst í rauninni ekkert svo fleiri mínútum skiptir,
    alls ekki. En ber mér þá að túlka þau orð hæstv. ráðherra þannig að ef það
    er rétt að við náum að skjóta þessi dýr og jafnvel finna upp mannúðlegri
    aðferðir við aflífun þá getum við treyst á stuðning hæstv. mennta- og
    barnamálaráðherra við hvalveiðar í komandi framtíð og að hún muni segja
    nei við frumvarpi hæstv. atvinnuvegaráðherra? <!--Hann segir aftur alltaf barna- og menntamálaráðherra, breytti því / ii--></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>