<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-17T13:36:42" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:38:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:36:42">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="31">
      <ns:málsheiti>bann við hvalveiðum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég sagði
    aldrei að hvert einasta dýr sem væri skotið væri í löngu dauðastríði, alls
    ekki. En miðað við nýjustu upplýsingar sem hafa fengist um það hvernig í
    rauninni þessi vertíð hefur gengið til skipta þau samt sem áður tugum af
    þessum á annað hundrað skepnum sem hefur verið slátrað. Það er bara aðeins
    of mikið. Hvert dýr sem þarf að ganga í gegnum langt dauðastríð er einu
    dýri of mikið. Ef hv. þingmaður heldur að það verði einhver stökkbreyting
    á því að skepnurnar verði drepnar í fyrsta skoti núna fram að þeim tíma
    sem hæstv. atvinnuvegaráðherra leggur fram sitt frumvarp þá held ég að það
    sé byggt á misskilningi. Og svo það sé hafið yfir allan vafa: Þessi
    ríkisstjórn er samhent. Hvort sem við deilum heilum um öll mál eða ekki,
    þá styðjum við hvert annað, við nálgumst hvert annað og við reynum að
    virða áhugamál hvert annars og skoðanir. <ns:bjalla/> Ég mun standa með
    atvinnuvegaráðherra fram í rauðan dauðann í öllum þeim málum sem við höfum
    ákveðið að leggja hér fyrir þingið.<!--Hún segir skýrt deilum heilum, staldraði við þetta en leyfi þessu 
að standa eftir að hafa borið undir LE ☺ / ii --></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>