<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T13:38:13" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:40:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:38:13">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="32">
      <ns:málsheiti>þjónusta við börn með fjölþættan vanda</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Við áttum gott og ágætt samtal um málefni
    barna fyrir nokkrum dögum þegar hæstv. ráðherra lagði fram frumvörp um
    barnavernd og um fjölþættan vanda. En mig langaði að fara aðeins nánar í
    mál sem tengjast barnaverndinni, sem sagt samkomulagið um börn með
    fjölþættan vanda sem við ræddum aðeins seinna. Það var farið af stað í þá
    vegferð og gert samkomulag við sveitarfélögin, ekki síst til að skerpa á
    verklagi þjónustu við viðkvæmustu hópana, viðkvæmustu börnin í
    samfélaginu, sérfræðingateymi sem skilgreindi hvaða börn myndu falla þarna
    innan, börn sem þurfa svokallaða þriðja stigs þjónustu, börn með þyngstu
    og erfiðustu greiningarnar og þjónustuþörfina. Þessi börn myndu falla
    innan þessa hóps sem ríkið átti að sjá um framkvæmd og fjármögnun þjónustu
    fyrir. Það voru allir sammála um skilgreininguna og að um 30–40 börn væri
    að ræða hverju sinni en í sumar, u.þ.b. einu og hálfu ári eftir að
    samkomulagið var gert, var gefin út reglugerð án alls samráðs við
    sveitarfélögin sem breytir skilgreiningunni á þeim hópi barna sem ríkið
    mun taka að sér. Samkvæmt því sem sveitarfélögin lýsa er hópurinn þrengdur
    og þyngstu málin, viðkvæmustu börnin, eru nú skilin eftir hjá
    sveitarfélögunum. Algengt er að þjónusta til hvers barns nemi 100–200
    millj. kr. á ári og munar því svo sannarlega um hvert barn í
    fjárhagsáætlanagerð sveitarfélaganna. Nú ber svo við að fjármunir sem gert
    hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlanagerð sveitarfélaga í ár verða minni
    vegna þess að þessi skilgreining var sett á í sumar án samráðs.
    Sveitarfélögin telja sig skiljanlega hafa verið svikin og mögulega mun
    þessi staða koma niður á börnunum sjálfum á einhverjum stöðum.
    <ns:bjalla/> En það sem ekki er síður varhugavert er að nú eru að verða
    til tvö kerfi, annað hjá ríkinu og hitt hjá sveitarfélögunum. <ns:bjalla/>
    Hvað segir ráðherra um þá stöðu sem komin er upp? Samkomulagið átti að
    bæta og skerpa þjónustu við börn í viðkvæmustu stöðunni. <ns:bjalla/> Það
    var markmiðið en nú eru kerfin orðin tvö að mati
    sveitarfélaganna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>