<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-17T13:40:55" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:43:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:40:55">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="32">
      <ns:málsheiti>þjónusta við börn með fjölþættan vanda</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem hún er
    nú búin að koma með áður. Kerfin eru tvö. Ég átta mig ekki alveg á því
    hvað hv. þingmaður á við. Það er nú á flestum sviðum í samskiptum ríkis og
    sveitarfélaga sem ríkið kemur að því að styðja ákveðin verkefni sem
    sveitarfélögin okkar eru að ráðast í. Í þessu tilviki er það algjörlega
    skýrt að sú reglugerð sem ég kom með í kjölfarið á þessu samkomulagi sem
    gert var í mars í fyrra byggist eingöngu á samkomulaginu og í rauninni
    engu öðru.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hefði hins vegar búist við því að hv. þingmaður hefði haft
    áhuga á því að vita hvað verður um Tækniskólann sem núna er búið að slá af
    í Hafnarfirði og er ítrekað búið að skrifa undir hérna og þar á meðal
    þegar hv. þingmaður var bæjarstjóri í Hafnarfirði. Það hefði verið
    áhugavert að fá í rauninni fyrirspurn um það þegar ég veit að hv.
    þingmaður þekkir málið vel og við vorum gjörsamlega í myrkrinu hér þegar
    var verið að skrifa enn og aftur undir þessa viljayfirlýsingu í vor um að
    byggja skólann í Hafnarfirði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvað lýtur að þriðja stigs þjónustu er það skýrt. Sveitarfélög
    sjá sjálf, og algjörlega á sinni ábyrgð, um fötluð börn og öll börn í
    viðkvæmri stöðu sem fá þjónustu í heimahúsi. Það sem við erum að gera er
    að taka utan um og setja 3 milljarða, plús viðbótar 1,5 milljarða sem eru
    í öðru formi, inn í stuðning við börn með fjölþættan vanda. Allir þessir
    fjármunir fara til þess að styðja við sveitarfélögin og þann mikla kostnað
    sem því fylgir. Það eru nú um 18 börn búin að fá þessa þjónustu. Þau eru
    34 á öllu landinu. Þar eru níu sem eru núna að bíða eftir að fá úrlausn
    sinna mála og að gengið sé frá samkomulaginu þannig að þegar upp verður
    staðið, hv. þingmaður, þá held ég að ég geti róað öll sveitarfélögin okkar
    með því að við skiljum ekkert barn <ns:bjalla/> sem þarf að njóta þriðja
    stigs þjónustu utan heimilisins eftir án þess að utan um það verði
    tekið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>