<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T13:43:17" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:44:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:43:17">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="32">
      <ns:málsheiti>þjónusta við börn með fjölþættan vanda</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og vil byrja á
    því að segja að það er gjörsamlega óviðeigandi að fara að tala um
    algerlega óskylt og allt annað mál hér úr ræðustóli Alþingis. Er verið að
    reyna að koma sér undan því að svara efnislega því sem hér var spurt að?
    Maður spyr sig. Ég vil ítreka þetta og tek þessi orð ráðherrans og spyr:
    Er þá verið að lofa því að þessu verði breytt til baka, að þessi þrengri
    skilgreining sem hefur verið gerð á þeim hópi sem ríkið ætlar að taka utan
    um — það verði þá lagað? Ég get ekki skilið yfirlýsingu ráðherrans
    öðruvísi en svo, nema hæstv. ráðherra telji að sveitarfélögin, Samband
    íslenskra sveitarfélaga, bæjarstjórar og aðrir sem hafa stigið fram séu
    hreinlega að fara með rangt mál. Hvort er rétt í því?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>