<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-17T13:44:17" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:45:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:44:17">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="32">
      <ns:málsheiti>þjónusta við börn með fjölþættan vanda</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn og
    frábið mér það að ég hafi ekki verið nógu skýr í mínum svörum þótt ég hafi
    nefnt annað mál sem heyrir undir mennta- og barnamálaráðherra sem er
    uppbygging Tækniskólans og stuðningur við hann. Nei, það er ekki verið að
    breyta neinu kerfi. Það er ekki verið að ganga á svig að einu eða neinu
    leyti við það samkomulag sem var gert í mars á síðasta ári, engan veginn.
    Hins vegar er ég að benda hv. þingmanni á það að þörfin á þessari
    þjónustu, þriðja stigs þjónustu, þyngstu þjónustu, er fyrir 34
    einstaklinga, 34 börn. Meginniðurstaðan af öllu þessu er að megnið af þeim
    hafa þegar fengið jákvætt svar við þessari þjónustu. Níu þeirra eru að
    bíða eftir að fá svar sem þau munu fá innan skamms þannig að þau sem eftir
    standa, miðað við þá 4,5 milljarða kr. sem við erum að setja í stuðning
    við þyngstu þriðja stigs þjónustuna utan heimilis — því það er nákvæmlega
    það sem þjónustan felur í sér, ekki NPA eða neina aðra þjónustu sem er
    viðkvæm þjónusta fyrir börnin sem eru inni á heimilunum. En við munum
    standa við okkar skuldbindingar, það er rétt. Það að ég sé að tvista
    einhverju eða lofa einhverju <ns:bjalla/> — ég er bara að standa við gerða
    samninga, hv. þingmaður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>