<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T13:45:47" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:48:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:45:47">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="33">
      <ns:málsheiti>málaflokkur útlendingamála</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Atvinnuleysisbætur fara að meiri hluta til til
    erlendra ríkisborgara, 13 milljarðar kr. komnir bara á fyrstu sjö mánuðum
    þessa árs. Örorku- og endurhæfingarlífeyrir frá Tryggingastofnun til
    erlendra ríkisborgara hefur farið úr 1,3 milljörðum árið 2010 í 16,6
    milljarða árið 2025, þ.e. 13-faldast. Ofan á þetta eykst sífellt beinn
    mánaðarlegur fjárhagsstyrkur frá sveitarfélögum til erlendra ríkisborgara.
    Þeir eru orðnir um 70% reikningsins hjá Reykjavíkurborg sem telur nú
    fleiri milljarða á ári. Maður hefði haldið að slíkur styrkur ætti að vera
    eins konar neyðarráðstöfun fyrir borgarbúa sem eiga ekki önnur úrræði en
    annað kemur á daginn. <ns:skáletrað>Morgunblaðið</ns:skáletrað> hefur gert
    grein fyrir því sem virðist vera augljós misnotkun að undanförnu þar sem
    menn hafa komið hingað til lands, aldrei verið á vinnumarkaði, þegið
    þennan styrk árum saman, jafnvel fimm eða sex ár, og almenningur fréttir
    fyrst af málinu þegar flett er ofan af því að einn slíkur, sem hafði komið
    sér svo makindalega fyrir á kostnað skattgreiðenda, reyndist vera
    sakborningur í manndrápstilraun í bílakjallara.</ns:mgr>

    <!--13:47:00 heyrist vera kynusli á persónufornafni ráðherra hjá honum-->

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hvað erum við að gera? Er ekki eitthvað bogið
    við það að í sömu viku og maður les um svona nokkuð í fjölmiðlum mæti
    ráðherra innflytjendamála í viðtöl og lýsi því að stjórnvöld séu búin að
    ná tökum á innflytjendamálum á Íslandi? Það rökstyður ráðherra með því að
    nú hægi á EES-aðflutningi vegna frosts í hagkerfinu, EES-aðflutningi sem
    sami hæstv. ráðherra hefur vel að merkja sagt að hann hafi ekki minnstu
    áhyggjur af. Það eru vonbrigði, virðulegur forseti, að ríkisstjórnin hafi
    ekki verið tilbúin til þess hér fyrir þinglok í júní að styðja tillögu
    okkar í Miðflokknum um takmörkun á dvalarleyfisveitingum þar sem þeim
    bauðst að sýna í verki að þau hefðu eitthvað annað í hyggju en óbreytt
    ástand. En fyrst stjórnvöld eru ekki tilbúin til að breyta lögunum er þó
    það minnsta sem við getum gert að tryggja að þeim sé framfylgt. Samkvæmt
    lögum á ekki að vera hægt að fá hér dvalarleyfi án þess að hafa trygga
    framfærslu upp á eigin spýtur. Hvernig stendur þá á því að menn haldi
    hérna dvalarleyfum árum saman lifandi á styrk frá hinu opinbera?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ætlar hæstv. ráðherra, spyr ég, að láta þessa lögleysu viðgangast?
    Telur hún þetta sanngjarnt gagnvart skattgreiðendum <ns:bjalla/> eða er
    hún tilbúin til að stíga nauðsynleg skref, stórherða þessi skilyrði, hætta
    að gefa út þessi dvalarleyfi og afturkalla þau sem hafa verið fengin
    ólöglega?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>