<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-17T13:48:13" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:50:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:48:13">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="33">
      <ns:málsheiti>málaflokkur útlendingamála</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hv. þingmaður spyr mig um aðgerðir hvað varðar
    dvalarleyfi. Því er fljótsvarað: Á þingmálaskrá haustsins er frumvarp til
    heildarendurskoðunar á dvalarleyfiskerfinu. Þar verða stigin markviss
    skref í þá átt að ná stjórn á þeim málaflokki. Á síðasta þingi fórum við í
    aðgerðir þar sem við vorum að horfa á alþjóðlega vernd. Næst á dagskrá er
    dvalarleyfiskerfið og í þriðja fasa verður endurskoðun á reglum um
    ríkisborgararétt. Þessi ríkisstjórn er að ná fram árangri í málaflokknum
    og ég myndi segja að leiðarstefið sé að við séum loksins að komast á þann
    stað að vinna út frá stefnu í stað þess stefnuleysis sem hér hefur ríkt
    árum saman með því einmitt að gera kröfur sem þingmaðurinn nefnir og ég er
    honum hjartanlega sammála. Auðvitað eiga að fylgja því kröfur að koma til
    landsins og það eiga að fylgja því kröfur til okkar líka, t.d. hvað varðar
    fólk sem kemur hingað á forsendum alþjóðlegrar verndar, að fólk fái
    sómasamlegar móttökur. Við erum að ná stjórn á málaflokknum. Ég held hins
    vegar að það sé ákveðinn misskilningur hjá þingmanninum þegar hann spyr
    mig um hvernig bótagreiðslum sé háttað. Það er málaflokkur sem heyrir
    undir annan ráðherra. En ég get þó sagt þetta: Vinnumálastofnun hefur
    aukið eftirlit með greiðslu atvinnuleysisbóta og annarra bóta og það er
    aðgerð sem kom fram með nýrri stjórn. Við erum að vinna þennan málaflokk
    skref frá skrefi; byrjum á alþjóðlegri vernd. Núna eru það dvalarleyfi,
    næst er það ríkisborgararétturinn. En af því að hv. þingmaður nefnir að
    við höfum ekki stutt einstakar tillögur hans þá vil ég minna hann á að
    hans flokkur studdi ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um brottfararstöð,
    sem er mikilvægt verkfæri við að koma því fólki úr landi sem á að fara úr
    landi og fer ekki úr landi. Hans flokkur studdi okkur heldur ekki í þeim
    aðgerðum þegar við erum að flytja erlenda sakamenn úr landi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>