<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T13:50:24" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:51:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:50:24">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="33">
      <ns:málsheiti>málaflokkur útlendingamála</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að minna á
    málefnalega og góða afstöðu Miðflokksins í þeim málum sem hann ræðir um,
    enda er okkar markmið að fara í grunnrót vandans í útlendingamálum, sem er
    t.d. sú rót vandans að við séum yfirleitt að taka kerfisbundið við
    hælisumsóknum á Íslandi sem við viljum hætta en hæstv. dómsmálaráðherra
    vill ekki. En það er önnur saga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Úr því að manni gefst tími hér í seinni fyrirspurn þá vildi ég
    forvitnast um nýframkomnar hugmyndir starfshóps um að draga stórlega úr
    vægi og áhrifum landsbyggðarinnar á íslenska stefnumótun, þ.e. fækkun
    landsbyggðarþingmanna. Þetta eru tillögur sem virðast hafa verið tilbúnar
    fyrir nokkru en eru komnar í fjölmiðla núna af einhverjum ástæðum, einmitt
    á sama tíma og þetta mál er horfið af þingmálaskrá. Ég vildi forvitnast um
    það hjá hæstv. ráðherra, ekki að maður trúi því að þetta ólánsmál fari í
    gegn á þessu kjörtímabili, en hvers vegna Viðreisn vill láta virðast sem
    svo að það gæti stefnt í það á þessu stigi? Við vorum að enda hérna mikla
    hópeflistilraun Viðreisnar í Evrópumálunum og maður veltir fyrir sér: Af
    hverju þetta mál, sem eru engar vísbendingar um að geti raunverulega farið
    hérna í gegn, hvort sem er í ríkisstjórn eða í gegnum Alþingi á þessu
    kjörtímabili, er tekið upp núna? <ns:bjalla/> Er það í von um að
    raunverulega gera það eða sannfæra kjósendur Viðreisnar e.t.v. um að þeir
    hafi fengið eitthvað upp úr krafsinu með því að kjósa Viðreisn annað en
    sífelldar <ns:bjalla/> gjalda- og skattahækkanir?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>