<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-17T13:51:51" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:53:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:51:51">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="33">
      <ns:málsheiti>málaflokkur útlendingamála</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Fyrst aðeins um útlendingamálin aftur. Miðflokkurinn einkennist af
    orðum. Þessi ríkisstjórn vinnur út frá aðgerðum. <ns:frammíkall>Heyr,
    heyr. </ns:frammíkall>Sú hefur verið framkvæmdin með allar breytingar á
    kosningalögum, sér í lagi þær sem eru stórar og stefnumarkandi, að erindi
    fer til þingsins frá ráðherra. Ég setti af stað hóp sérfræðinga til að
    vinna tillögur að því að jafna vægi atkvæða, og auðvitað kemur það mér
    ekki vitund á óvart að Miðflokkurinn sé á móti því réttlætismáli. En
    eðlileg vinna, öll venja, öll framkvæmd varðandi breytingar á
    kosningalögum er sú að forseti Alþingis fær erindi, ósk um það að
    þingmannanefnd verði sett á fót til að vinna úr þessum tillögum. Það er
    verkefni þingsins að forma kosningalög. Þannig hefur það verið og þannig
    tel ég að það sé eðlilegt. Þarna liggur fyrir skýrsla, það liggur fyrir
    greining og það liggja fyrir ákveðnar tillögur en það er Alþingi
    Íslendinga sem tekur skref hvað varðar breytingar á kosningalögum. Mín
    afstaða er sú að það sé bæði þarft og gott <ns:bjalla/> að fara í þær
    breytingar en það er gríðarlega mikilvægt að þær breytingar séu unnar af
    hálfu þingsins alls í sátt og fái vandaða og góða málsmeðferð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>