<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T13:53:25" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:54:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:53:25">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="34">
      <ns:málsheiti>atvinnustarfsemi á haf- og strandsvæðum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þáverandi Skipulagsstofnun, sem er nú HMS,
    sendi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu minnisblað þann 18.
    október 2024. Í þessu minnisblaði kom fram að stofnunin teldi ástæðu til
    að móta skýran ramma um kröfur um áhættumat vegna náttúruvár á
    strandsvæðum. Nánar tiltekið segir í niðurstöðum minnisblaðsins að þörf sé
    á að skýra kröfur og viðmið við áhættumat, bæði við skipulagsgerð og
    leyfisveitingar á haf- og strandsvæðum. Þar er jafnframt bent á að reglur
    um ofanflóðaáhættumat taki fyrst og fremst mið af áhættu fyrir fólk en
    ekki sérstaklega af mögulegu umhverfistjóni, svo sem slysasleppingum úr
    sjókvíaeldi. Skipulagsstofnun óskaði eftir því að ráðuneytið tæki málið
    upp. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála:
    Hefur hæstv. ráðherra eða ráðuneytið brugðist við þessu minnisblaði og þá
    með hvaða hætti? Með öðrum orðum: Liggja nú þegar fyrir skýr og samræmd
    viðmið um hvernig meta skuli náttúruvá, þar á meðal mögulega hættu á
    slysasleppingum, við leyfisveitingar á haf- og strandsvæðum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>