<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-17T13:55:08" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:56:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:55:08">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="34">
      <ns:málsheiti>atvinnustarfsemi á haf- og strandsvæðum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að
    taka þetta mál hér upp í þessum sal. Þetta eru ábendingar frá
    Skipulagsstofnun, sem nú heitir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, sem komu
    fram í október 2024. Ég var upplýstur um þetta minnisblað í febrúar 2025
    og setti af stað vinnu við að fylgja þessu eftir, vinnu sem byrjaði í
    rauninni á samtali milli ráðuneyta um það hvort ástæða væri til þess að
    fara í sérstakar reglugerðarbreytingar til að tryggja betur vernd þegar
    kemur að atvinnustarfsemi á svæðum þar sem ofanflóðahætta er fyrir hendi.
    Þessi skoðun hefur staðið yfir og þessi vinna við breytingar á reglugerð
    um umhverfismat stendur enn yfir. Þetta er áherslumál. Ég tel gríðarlega
    mikilvægt að koma þessum málum í betra horf. Þetta er auðvitað sett að
    einhverju leyti fram í samhengi við Seyðisfjörð. Þar hefur verið deilt
    mjög harkalega um sjókvíaeldi. Það er mikið hitamál. Þar er þetta sem
    lýtur að ofanflóðahættunni eitthvað sem ég hef haft áhyggjur af og beint
    því til minnar stofnunar að skoða sérstaklega.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>