<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T13:56:54" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:58:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:56:54">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="34">
      <ns:málsheiti>atvinnustarfsemi á haf- og strandsvæðum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er
    vissulega jákvætt að það sé vinna í gangi. Það eru þessar ábendingar, það
    er auðvitað fjöldi ábendinga í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar sem þarf
    að fara yfir og þó svo að það sé ekki búið að gera þær úrbætur þá halda
    leyfisferli áfram.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, í ljósi þess að ég veit að
    flokkur ráðherra lagði áherslu á að framtíð fiskeldis byggðist á traustu
    eftirliti, vöktun, rannsóknum og að greinin stæðist ýtrustu
    umhverfiskröfur, sem ég held að séu kröfur sem allir geti tekið undir,
    hvort hæstv. ráðherra hafi ekki talið það skynsamlegast að hraða slíkri
    vinnu í ljósi þess að hún þarf ekki lagabreytingar og hvort það hefði
    kannski ekki verið eðlilegt að klára það áður en slíkar stórar
    leyfisveitingar eru veittar eða farið í þær. Mig langar að ítreka hér að
    auðvitað snýst þetta ekki um hvort menn séu með eða á móti fiskeldi.
    <ns:bjalla/> Þetta snýst um það að fyrirtækin geti treyst á stöðuga
    lagaumgjörð. <ns:bjalla/> Þetta snýst um að það sé skýrleiki fyrir
    samfélög og líka að það sé verið að horfa á þetta allt í samhengi við
    umhverfið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>