<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-17T13:58:25" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 13:59:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T13:58:25">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="34">
      <ns:málsheiti>atvinnustarfsemi á haf- og strandsvæðum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég tek sannarlega undir það að hraða þessari
    vinnu. Það er auðvitað mjög bagalegt að hér hafi ekki náðst að klára
    lagaumgjörð um sjókvíaeldið á síðasta löggjafarþingi. Þær aðgerðir sem
    farið var í eftir að minnisblaðið barst frá Skipulagsstofnun lúta að
    skoðun á reglugerðum, skýrari kröfum til atvinnustarfsemi á
    ofanflóðasvæðum og skerpingu á hættumati og þá með tilliti til þess hvort
    líkur séu á umhverfistjóni. En það sem ég gerði líka þarna strax um svipað
    leyti var að beina því til Umhverfis- og orkustofnunar að skoða hvort lög
    um umhverfisábyrgð ættu við um slysasleppingar. Sú vinna hefur verið í
    gangi síðan og þá með tilliti til mögulegra lagabreytinga til að hnykkja
    enn betur á því að sá lagabálkur komi til álita þegar kemur að sjókvíaeldi
    og slysasleppingum vegna þess að sá lagabálkur hefur að einhverju leyti
    verið svolítið óvirkur síðan lögin voru sett á sínum tíma. <ns:bjalla/> En
    þetta er eitt af þeim örfáu verkfærum sem ég hef sem umhverfisráðherra til
    þess að stíga inn þegar kemur að slysasleppingum og umhverfistjóni vegna
    sjókvíaeldis.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>