<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:00:08" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:00:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:00:08">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="37">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég hlýt að vekja athygli forseta á því að hér fór
    fram undir þessum lið fyrirspurn til hæstv. ráðherra og mér finnst
    algerlega óásættanlegt, af því að þessi dagskrárliður er í rauninni eina
    leið okkar þingmanna til að eiga orðaskipti við ráðherra, að ráðherrar
    kjósi undir þeim lið að svara í engu þeim fyrirspurnum sem fyrir
    ráðherrunum liggja heldur haldi hér fram einhverju algjörlega óskyldu máli
    sem eingöngu virðist vera til þess fallið að koma höggstað á
    fyrirspyrjanda. Ég vil fá afstöðu forseta í þessu máli um það hvort hann
    telji þetta viðunandi, hvort það sé þá ekki rétt að halda ráðherrunum
    hreinlega við efnið í þessum málum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>